Leita í fréttum mbl.is

Þráhyggja eða hvað

Í vetur sem leið eignaðist ég myndavél sem ég var hálf ástfangin af. Ég fékk dellu, ljósmyndadellu. Kveikjan var trúlega félagi minn sem áður hafði fjárfest í samskonar vél smitaði mig. Hvað um það. Hann startaði ljósmyndakeppni milli okkur nokkurra félaga sem allir eigum samskonar vélar. Teningunum var kastað. Þema fyrstu vikuna var frost ef ég man rétt.  Ég sendi mynd inn af trillu sem lá við legufæri í smábátahöfnina í Sandgerðisbót. Báturinn heitir Smugan. Svona er myndin sem þá var tekin og send í keppnina.IMG_0856

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þegar vora leysti lagði ég leið mína í Sandgerðisbótina sem oftar. og þá smellti ég aftur mynd af þessu fleyi þegar snjóa hafði leyst og báturinn trúlega til í slaginn. Bloggfélagi minn einn sem er fullur af fróðleik um gripinn sá strax að báturinn væri ekki í sem besta ástandinu og hálfpartinn  skoraði á mig að versla gripinn og gera upp. Svona leit gripurinn út þá.

13-15.mars 101

 Nú skömmu síðar þegar leið mín lá í Bótina sá ég að báturinn var komin á þurrt og tveir menn voru í óða önn við að skrapa og gera klárt undir málningu. Ég fékk að smella mynd af bátnum ásamt öðrum manninum sem er einn af eigendum bátsins. Hann fræddi mig á því að trúlega væri báturinn ekki falur þótt boðið væri hátt. Ég fékk ýmsar upplýsingar um bátinn og sögu hans og bloggaði um það forðum daga sjá hér. En ef þið nennið ekki þá var um bátinn stofnað ,,útgerðar- og eigendafélag" sem heitir TÚA ,,Trillubáta Útgerðarfélag Akureyringa".

Leið mín liggur oft í Bótina og nú er Smugan komin á flot aftur nýmáluð og skveruð. Búið að koma henni í Þórslitina þ.e. Rautt og hvítt.

SmuganRauð

Það kann að vera að fólki sé farið að þykja þessi mikla athygli sem þessi trilla fær hjá mér sé farið að líkjast þráhyggju. Það getur verið. Og sé svo þá er það bara allt í lagi.

Að endingu má ég til með að henda inn enn einni færslunni um Manchester City. Þeir eru komnir áfram í Evrópukeppninni, sem er bara hið besta mál.

Málsháttur kvöldsins: Hvar sem fjandinn ei er, þar hefur hann sína

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jac Norðquist

Mér finnst "Þráhyggjan" þín bara skemmtileg lesning Palli. Endilega haltu áfram á þessari braut. Það væri samt ferlega gaman að sjá þig taka fyrir gömul hús á Akureyri og í nærsveitum og fá smá sögustund um þau.... ég varpa þessu hér með fram. .... ja... og skora bara á þig um leið :)

Bestu kveðjur frá Odense

Jac "Bói" Norðquist

Jac Norðquist, 29.8.2008 kl. 09:21

2 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Innlit.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 29.8.2008 kl. 11:59

3 Smámynd: Páll Jóhannesson

Bói! þessari áskorun er tekið hér með - nú er eins gott að fylgjast með....

Páll Jóhannesson, 29.8.2008 kl. 15:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

242 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband