Leita í fréttum mbl.is

Kona sem mark er á takandi

P4190028Þennan dag árið 1935 leit þessi yndislega kona dagsins ljós. Þessi kona er í senn móðir, amma, tengdamamma og eiginkona húsmóðir svo fátt eitt sé talið - hún fer létt með það.

Þessi kona hefur gengið í gegnum þykkt og þunnt, súrt og sætt mátt þola mótlæti sem og meðbyr en ávallt staðið eins og klettur. Það er nokkuð sama hversu háar öldur hafa risið allt í kringum hana hún kemur ávallt niður á fæturna án þess að bogna.

Þessi kona hefur alið af sér 5 börn slatta af barnabörnum og nokkur barna-barnabörn en lítur samt út eins og nýútsprungin rós. Ég er að tala um ekta Íslenska konu, konu sem veit hvað þarf að gera til þess að á hana sé hlustað og á henni sé tekið mark.

Ég er að tala um elskulega móðir mína, nema hvað? Kona sem lætur ekki aldurinn stoppa sig í að vera nútímaleg, tölvuvædd notar netið eins og unglingarnir, frábær listmálari, söngelsk með meiru.

Er á leið í hefðbundið afmæliskaffi hjá henni og þar verður væntanlega glatt á hjalla ef ég þekki mitt fólk rétt.

Til hamingju með daginn móðir góð.

Fróðleikur dagsins er fengin að láni hjá Albert Einstein: Ég hugsa aldrei um framtíðina hún kemur nógu snemma.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Jóhannesdóttir

Þetta er hverju orði sannara með móðir okkar. Verst að vera ekki á staðnum en kem eftir nokkra daga. Bið að heilsa í bæinn á meðan

Hrönn Jóhannesdóttir, 11.7.2007 kl. 17:30

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Glæsileg kona og ungleg. Til hamingju með mömmu þína!

Edda Agnarsdóttir, 11.7.2007 kl. 20:22

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Páll þú ert hér með klukkaður! Skoðaðu bloggið mitt ef þig vantar upplýsingar.

Edda Agnarsdóttir, 12.7.2007 kl. 00:42

4 identicon

Til hamingju með mömmu þína, og bestu kveðjur norður í blíðuna. Nú ætla ég að leggja Melrakkasléttuna að fótum mér  og legg af stað norður föstudagskvöldið 20. nk. Ætla mér fimm daga í þvæling um norðausturhornið og fer að vinna aftur þ. 26. Ef þú hefur eitthvað með norðlenska veðrið að gera, þá legg ég hér með inn beiðni um þokkalegt ferðaveður.  Kv GTh.

Gunnar Th. (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 01:02

5 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Til hamingju með móður þína, sannanlega glæsileg fyrirmynd. Held að hún hafi verið ágæt vinkona móður minnar sem er ný látin. Kölluð Lilla frá Fosshóli.

S. Lúther Gestsson, 12.7.2007 kl. 01:33

6 identicon

Til hamingju með mömmuna þína

Anna Bogga (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 09:36

7 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Til hamingju með mömmu þína. - Kv. í heiðardalinn

Þorsteinn Gunnarsson, 12.7.2007 kl. 13:55

8 Smámynd: Páll Jóhannesson

þakka öllum fyrir góðar kveðjur til handa móður minni. Stór dagur á morgun, meira þá.

Páll Jóhannesson, 12.7.2007 kl. 16:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

235 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband