27.6.2007 | 19:53
Vá skildi maður ná að toppa þetta?????
Í dag eru hvorki fleiri né færri en 19710 dagar - 2808 vikur - 648 mánuðir = 54 ár frá því að ættarhöfuðin mín mamma og pabbi gengu í það heilaga. Án efa hefði þetta aldrei geta gengið svona vel sem raunin er á nema fyrir þær sakir hvað börnin þeirra voru ofboðslega þægileg og viðráðanleg í uppeldinu. Hver sem ástæðan er full ástæða til þess að óska þeim innilega til hamingju með þennan áfanga.
Þegar maður reynir að hugsa til baka og kannski gera sér í hugarlund hve langur tími þetta er - þá bara gengur það ekki. Til þess er maður einfaldlega ekki nógu gamall. Aftur á móti færðist bros yfir andlitið á mér við þessa tilhugsun því Dóri STÓRI bró ætti að geta leitt hugan að þessu til þess er hann karl greyið nægilega gamall
Heldur er manni brugðið þessa dagana vegna veðurfarsins. Í morgun var það mitt fyrsta verk að líta á dagatalið og athuga hvort ég væri staddur í réttum brandara? Farið að hilla undir lok júní og hitinn rétt skríður yfir frostmarkið þegar ég fór út rétt fyrir kl. 07:00. Þetta er náttúrulega algert hneyksli að bjóða uppá þennan fjanda 5-6 gráðu hiti að morgni dags - hver stjórnar þessu eiginlega, ég bara spyr.
Fróðleikur dagsins: Fullnæging svína varir í u.þ.b. 30 mínútur.33 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Flickr myndasíður
- Palli Jóh Hér birti Palli Jóh uppáhaldsmyndirnar sínar.
- Dagga -flikkar
- Runólfur
- Svanný
- Rúnar Haukur
- Merkjamanni
- Þórólfur Sveinsson
- Þórður Halldórsson
- Bói Flickr
- Ívan flikkar
- Sigfríður Guðný
Íþróttaklúbbar.
- Íþróttafélagið Þór
- Manchester City
- Chicago Bulls
- Arsenal fyrir Sölla
- Knattspyrnusamband Íslands
- Körfuknattleikssamband Íslands
- Karfan.is
Áhugaverðar síður.
- Pólitíkin
- Gunnar Ísfirðingur
- Hallandsnes
- Ljósstaðafólkið
- Samfylkingin á Akureyri
- Ungir jafnaðarmenn á Akureyri
- Skúli miðill
- Vísisblogg hjá Gunnari Th. Afbrags góður bloggari.
- Gummi Odds í Ameríku Doktor í smíðum
- Valberg og Steinun blogga
- Palli Jóh á Youtube Myndbönd Palla Jóh
Fjölskyndan bloggar.
Nýjustu færslur
- 4.4.2012 Myndbands- og myndablogg
- 14.3.2012 Smá uppfærsla
- 24.12.2011 Gleðileg jól
- 1.8.2011 Á lífi
- 25.4.2011 Að leika við hvurn sinn fingur
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með foreldra þína. Það er ekki nema von að fróðleikur dagsins snúi um lengd fullnægingar, brúðkaupsafmæli foreldrana og kuldinn sem hefur oftar en ekki att fólki út í þennan fróðleik.
Edda Agnarsdóttir, 27.6.2007 kl. 23:49
Til hamingju með foreldrana. Möguleiki minn á þessu er ekkert of stór en við Helga létum ekki pússa okkur saman fyrr en 2004 svo maður verður orðinn illa hokinn á 54 ára giftingarafmælinu ef svo hryllilega færi að maður næði þeim áfanga
Þorsteinn Gunnarsson, 28.6.2007 kl. 02:13
En Steini minn - það er aldrei að vita hvað þessi sem öllu ræður þ.e. himnafaðirinn gerir aldrei að segja aldrei
Ég verð ekki nema 77 ára þegar og ef ég næ þessu - kannski verður himnafaðirinn mér hliðhollur, hver veit
Páll Jóhannesson, 28.6.2007 kl. 11:15
Hæ já til hamingju með foreldra okkar. Sammála þessu með börnin enda ekki á hverju strái sem svona þæg og góð börn eru til nema auðvitað þegar að okkur kemur. Já skil með veðrið en hérna megin er ekki hægt að kvarta enda sól og blíða ekki öðru vön eins og þú veist hehe. Með fróðleik dagsins þá finnst mér hann við hæfi í tilefni dagsins. Kveðja Suðurnesjamenn
Hrönn Jóhannesdóttir, 28.6.2007 kl. 13:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.