Leita í fréttum mbl.is

Gargandi snilld.

Gargandi snilld og ekkert annað. Nú er bara ná þeim í Laugardagshöllina aftur. Þegar þessir snillingar spiluðu í höllinni forðum var ég fjarri góðu gamni - í stofufangelsi hjá ,,gamla" Fíra sem ekki taldi stubbinn nægilega fullorðin til að sækja þessa kynngimögnuðu samkomu. Þetta kalla ég fréttir í lagi, og ef af verður þá ........Ó - jehhhhh.

Fyrri fróðleikur dagsins: Mark Twain fæddist árið 1835, sama dag og halastjarna Halleys birtist. Hann dó sama dag og hún birtist aftur, árið 1910.
mbl.is Led Zeppelin að snúa aftur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Jaá nú líst mér á þig kallinn! Ég fór nebbilega á Led Zeppelin árið 1970 rétt tvítug, hafði ekki hlustað mikið meir á þá en í útvarpi áður en ég fór, en eftir þessa tónleika heillaðist ég af bárujárnsrokki.

Edda Agnarsdóttir, 28.6.2007 kl. 22:42

2 Smámynd: Páll Jóhannesson

Smitaðist af þessum jarnkörlum í gegnum stóra bró en var farin að hlusta mikið á Zeppelín áður en þeir komu.  Aðdáun mín á þeirra tónlist hefur haldist síðan. Það sem meira er að tvö af mínum börnum 23 ára og 17 ára fíla þá í ræmur í dag og hlusta mikið á þá. Greinilegt að tónlist þeirra lifir enn.

Páll Jóhannesson, 29.6.2007 kl. 00:01

3 Smámynd: Þorsteinn Gunnarsson

Já manni var nú kurteislega bent á það að á þessa tónleika hefði maður ekkert að gera og á þessu árum hlýddi maður jú ennþá svo því fór sem fór... 

Og það er nú eins og það er að þegar maður, að kveldi dags, situr á skörinni hjá himnaföðurnum og lítur yfir farinn veg þá verða það ekki hlutirnir sem maður gerði, sem maður sér eftir... heldur hinir sem maður gerði ekki

Þorsteinn Gunnarsson, 29.6.2007 kl. 01:15

4 Smámynd: Páll Jóhannesson

Það er greinilegt að við eigum margt sameiginlegt t.d. þetta að hlýða foreldrum okkar í hvívetna

Páll Jóhannesson, 29.6.2007 kl. 08:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

248 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband