12.5.2009 | 10:15
Maður dagsins er hógvær og hæglátur
Dagurinn er 12. maí 1984 kl. er 10:30 á Höfn í Hornafirði. ,,Palli hringdu í ljósmóðurina ætli sé ekki best að drífa í þessu". Hápunktur móttökuathafnarinnar er náð tæpri klukkustund síðar nákvæmlega kl. 11:18. 3600 gr. (14,4 marka) 53 cm langur ljósir lokkar. Kom hratt í heiminn ekki með neinum látum, hratt og hljóðlátt. Fæddist á fæðingarheimili Hornafjarðar sem var þá staðsett í kjallara elliheimilisins á staðnum.Heldur uppá aldarfjórðungs afmælið sitt í dag með látum.
Í góðærinu buðu sumir upp á skemmti atriði með fyrrum stórstjörnum til að troða upp.... það var svona 2007. Afmælisbarnið í dag býður uppá ríkistjórnarfund á Akureyri í dag, fund með þingmönnum og ráðherrum Samfylkingarinnar í Lárusarhúsi og fékk allar helstu tónlistarstjörnur dagsins í dag til að troða upp í afmælinu sínu - Eurovision. Eitthvað kosta þessi herleg heit.
Sem barn fór lítið fyrir fyrir honum. Var ekki vanur að troða neinum um tær og gerir ekki enn. Setti sér það markmið sem lítill strákur að verða atvinnumaður í körfubolta NBA og ljúka háskólanámi. Ekki hefur enn draumurinn um atvinnumennsku ræst en kemst þó næst því að því marki að vera atvinnumaður í að skrifa um körfubolta. En draumurinn um háskólapróf er u.þ.b. bil að rætast. Búinn að skila inn B.A. ritgerðinni og bíður nú eftir lokaeinkunninni. Þarf engu að kvíða því allt lítur út fyrir að þar muni hann brillera.
Hann er þekktur fyrir það að tala varlega. Ættingjar og vinir segja gjarnan ,,já Sölli talar ekki af sér". En þegar á reynir og honum þykir ástæða til að láta móðan mása þá getur hann það svo sannarlega. Hans kostur er að hugsa vel og vandlega áður en hann opnar munninn - nokkuð sem margir mættu taka sér til fyrirmyndar.
Þeir sem þekkja hann best segja hann hæglátan og hógværan og geri ekkert í lífinu með neinu óðagoti. Hvaðan skildi hann hafa þann eiginleika?. Ég vil meina að þetta sé nokkuð sem hann hafi frá pabba sínum....... mér finnst eins og ég sé sá eini sem finnist þetta. Mér finnst eins og fólki finnist yfir höfuð þetta sé eitthvað sem hann hafi frá mömmu sinni.... ætli það ekki bara. Ég á þá bara stórann þátt í öllum hinum kostunum sem ég tel ekki upp hér.
Má til með að láta fylgja myndir af prinsinum. Tvær frá því að hann var lítill gutti. Tók mig til fletti í gegnum gömul albúm með myndum af honum. Skannaði inn tvær sem sést hér að ofan. Var vart búinn þegar hann mætti í eldhúsið og hóf að fletta í gegnum albúmið. Hann hafði greinilega lúmskt gaman af eins og myndin hér að ofan sýnir.
Eins og gjarnan þegar einhver í familíunni á afmæli þá fer bakarin hinn eini sanni af stað. Byrjaði á því að baka eina tertu að ósk afmælisbarnsins. Svo var bökuðu önnur fyrir systkinabörnin, svo fyrir pabbann, ömmu og afa vini og aðra vandamenn og þegar upp er staðið er til nóg handa öllum.
Í dag er opið hús í Drekagilinu frá morgni og langt fram á kvöld. Frú Margrét hefur svo sannarlega séð til þess að nóg er til handa öllum og ríflega það.
Til hamingju með afmælið Sölmundur Karl
Fróðleikur dagsins: Abraham Lincoln var kjörinn forseti Bandaríkjanna árið 1860. John F. Kennedy var kjörinn forseti árið 1960
336 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Flickr myndasíður
- Palli Jóh Hér birti Palli Jóh uppáhaldsmyndirnar sínar.
- Dagga -flikkar
- Runólfur
- Svanný
- Rúnar Haukur
- Merkjamanni
- Þórólfur Sveinsson
- Þórður Halldórsson
- Bói Flickr
- Ívan flikkar
- Sigfríður Guðný
Íþróttaklúbbar.
- Íþróttafélagið Þór
- Manchester City
- Chicago Bulls
- Arsenal fyrir Sölla
- Knattspyrnusamband Íslands
- Körfuknattleikssamband Íslands
- Karfan.is
Áhugaverðar síður.
- Pólitíkin
- Gunnar Ísfirðingur
- Hallandsnes
- Ljósstaðafólkið
- Samfylkingin á Akureyri
- Ungir jafnaðarmenn á Akureyri
- Skúli miðill
- Vísisblogg hjá Gunnari Th. Afbrags góður bloggari.
- Gummi Odds í Ameríku Doktor í smíðum
- Valberg og Steinun blogga
- Palli Jóh á Youtube Myndbönd Palla Jóh
Fjölskyndan bloggar.
Nýjustu færslur
- 4.4.2012 Myndbands- og myndablogg
- 14.3.2012 Smá uppfærsla
- 24.12.2011 Gleðileg jól
- 1.8.2011 Á lífi
- 25.4.2011 Að leika við hvurn sinn fingur
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 190695
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með drenginn. Við afi hans mætum í kaffi með hamingjuóskirnar.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 12.5.2009 kl. 11:06
Til hamingju með strákinn Nokkuð viss eins og þú segir að hógværð og lítillæti kemur ekki án efa úr okkar ætt Eigið lúfan dag
Hrönn Jóhannesdóttir, 12.5.2009 kl. 13:17
Til hamingju með hann . Kveðjur frá okkur í Danmörk
Margith Eysturtún, 12.5.2009 kl. 13:58
Skemmtileg stutt yfirferð, auðvitað eru þetta allt pabbastrákar Palli. Við leyfum bara mömmunum að eigna sér þetta:)
Heyrðu, vissirðu að Þór vann ÍA? Hvergi minnst á það, er kannski Sölmundur KA maður?
S. Lúther Gestsson, 12.5.2009 kl. 14:17
Aaaaa Lúther minn Sölmundur er grjótharður Þórsari. Hvergi minnst á Þór - ÍA lestu þetta skrifað á heimasíðu Þórs. Ég og ungur og efnilegur penni skrifum um karlaboltann hjá Þór. Ég og Sölmundur skrifum um kvennaboltann. Svo bara til fróðleiks þá er Sölmundur fréttaritari www.fotbolti.net og skrifar um alla leiki Þórs og kvennaliðsins þar.
En takk fyrir að minnast á að Þór vann ÍA það var mjög gaman.
Páll Jóhannesson, 12.5.2009 kl. 14:34
Heimasíðu Þórs les ég ca 2 í viku, fannst bara skrítið að ekkert væri bloggið komið.
S. Lúther Gestsson, 12.5.2009 kl. 15:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.