28.4.2009 | 16:21
Vorverk
Vorið er komið og grundirnar ........ og allt það. Með hækkandi sól þarf að taka fram ýmis verkfæri og láta hendur standa fram úr ermum. Latur maður sagði ,, þess vegna er ég aldrei í stutterma bol¨. Ég er heppinn ég fékk hjálp.
En áður en byrjað er þá er víst betra að leggja línurnar hvernig á að gera. ,,Ungur nemur gamall temur". Já þetta byrjaði ágætlega ............... og
Sólpallurinn fékk þvott, gluggarnir einnig afi smá í tærnar enda illa klæddur. Jón Páll snéri máltækinu við ,,ungur nemur....." því hann mætti í pollagalla og kom inn í kvikk hjá ömmu á eftir þurr í lappir og alles.
Í kvöld ætlum við feðgar að fara í Bogann og horfa á Stelpurnar okkar í Þór/KA taka á móti Breiðabliki í undanúrslitum A-deildar Lengjubikarsins.
Gaman verður að sjá hvernig þessi viðureign fer. Þessi lið mættust fyrr í vetur en þá unnu Blikar. Marga lykilmenn vantaði þá í okkar lið. Nú vantar lykilmenn í bæði lið. Það mun án efa hafa jákvæð áhrif á okkar lið að Rakel Hönnudóttir er komin heim og leikur með.
Hvað um það. Ég verð með viðhaldið með mér og mun án efa smella villt og galið. Læt hér að lokum fylgja með mynd sem félagi minn tók af mér í aksjón. Gaman af þessu. En endilega drífið ykkur í Bogann og horfið á skemmtilega íþrótt. Leikurinn hefst kl. 18:00
Fróðleikur dagsins: Fullnæging svína varir í u.þ.b. 30 mínútur.
249 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Flickr myndasíður
- Palli Jóh Hér birti Palli Jóh uppáhaldsmyndirnar sínar.
- Dagga -flikkar
- Runólfur
- Svanný
- Rúnar Haukur
- Merkjamanni
- Þórólfur Sveinsson
- Þórður Halldórsson
- Bói Flickr
- Ívan flikkar
- Sigfríður Guðný
Íþróttaklúbbar.
- Íþróttafélagið Þór
- Manchester City
- Chicago Bulls
- Arsenal fyrir Sölla
- Knattspyrnusamband Íslands
- Körfuknattleikssamband Íslands
- Karfan.is
Áhugaverðar síður.
- Pólitíkin
- Gunnar Ísfirðingur
- Hallandsnes
- Ljósstaðafólkið
- Samfylkingin á Akureyri
- Ungir jafnaðarmenn á Akureyri
- Skúli miðill
- Vísisblogg hjá Gunnari Th. Afbrags góður bloggari.
- Gummi Odds í Ameríku Doktor í smíðum
- Valberg og Steinun blogga
- Palli Jóh á Youtube Myndbönd Palla Jóh
Fjölskyndan bloggar.
Nýjustu færslur
- 4.4.2012 Myndbands- og myndablogg
- 14.3.2012 Smá uppfærsla
- 24.12.2011 Gleðileg jól
- 1.8.2011 Á lífi
- 25.4.2011 Að leika við hvurn sinn fingur
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll nafni.
Nú er eins gott að bretta upp ermar og hefja verkin í sumarsólinni
þrátt fyrir flensu svína og fullnægju.
Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 16:34
Rétt það þýðir ekkert að hunsa þetta
Páll Jóhannesson, 28.4.2009 kl. 16:51
Hæ hæ snjórinn sem sagt farinn
Gott að hafa góða aðstoðarmenn sér við hlið
Hann er flottastur þessi duglegi strákur
Hrönn Jóhannesdóttir, 28.4.2009 kl. 19:30
Já flottur gaur og þegar svona aðstoðarmenn eru til taks er von á góðu
Páll Jóhannesson, 28.4.2009 kl. 22:18
Tekur þig ekkert smá vel út með viðhaldið frændi
Anna Bogga (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 10:00
Ég tek eftir áberandi stærðarmun á þinni myndavél og minni! (Mér sýnist líka á hinum myndunum að það megi skýra stærðarmuninn að hluta með stærð eigandans! Lítil vél hæfi lágvöxnum manni, eða þannig.....)
Ég sé að vorið er komið hjá ykkur. Það er svo sem hér fyrir sunnan líka, en einhven veginn virkar vorið miklu skemmtilegra, og svona nær manni, þegar maður getur horft á það dafna með gróðrinum í hlíðinni handan fjarðar. Hér í Kópavogi er ekkert "handan fjarðar", og ég sakna þess stundum. Var fyrir vestan um síðustu helgi og hélt til í Súðavík. Á lognkyrrum, sólbjörtum vormorgni eru fáir staðir fallegri en Álftafjörðurinn, sannkölluð paradís.
.......svo þurfti ég að fara suður aftur.......
Gunnar Th. (IP-tala skráð) 1.5.2009 kl. 09:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.