Leita í fréttum mbl.is

Ég hefði kannski betur elt þá í bankann

Föstudagsmorgun og ef allt hefði verið með feldu þá hefði leið mín legið í Hamar félagsheimili í morgunkaffi. En aldrei þessu vant þá brá ég þess í stað undir mig betri fætinum og fjórum hjólum og brunaði út úr bænum. Endastöðin höfuðþorp Íslands sem liggur við sundin blá. Með í för frúin, dóttirin og viðhaldið. Fyrsta augnablikið sem mér þótti við hæfi að mynda voru Hraundrangar mikil náttúruperla. Við rætur fjallsins stendur hið forna býli Hraun þar sem skáldið Jónas Hallgrímsson er jafnan kenndur við.

hraundrangar.jpg

Eftir því sem lengra var haldið dró meir og meir fyrir sólu og fátt sem fékk bílstjórann til að stoppa. Um hádegisbilið var komið til þorpsins sem Kári vinur minn kallar jafnan ,,Borg Óttans". Kvenpeningurinn vildi fara á Laugarveginn og ganga hann þveran og endilangan. Verðkönnun. Palli var lítt spenntur fyrir þess konar uppátækjum. Ég hugði mér gott til glóðarinnar. Hengdi viðhaldið um háls mér og gekk á hólinn sem kenndur er við landsnámsmanninn Ingólf. Heilsa uppá hann. 

ingolfur.jpg

Ingólfur heima eins og vanalega. Þarna stóð hann eins og hann hefur gert svo lengi og getur ekkert annað, kemst ekkert frá.  Á vinstri hönd er svo bankinn sem á að gæta aura okkar og koma í veg fyrir klúður og vitleysisgang. Handan þess mikla hús má sjá í byggingakrana því þar er að rísa hið mikla hús er Bjöggi og félagar hófu að reisa og var fyrsta skrefið í yfirtöku landsins alls. Neðan jarðargöng voru víst á dagskrá yfir í Seðlabankann. 

se_labankinn.jpg

Hversu oft hafði ég ekki horft heim að þessum banka án þess að hafa nokkurn tíman lagt leið mína svo nálægt. Skildi vera óhætt að fara alla leið að anddýri þessa mikla hofs þar sem Dabbi réði þar til að heilög Jóhanna rak hann? Ég lét á það reyna.

se_labankinn01.jpg

Þar sem ég stóð fyrir framan innganginn í bankann fór um mig einkennilegir straumar. Hvað er í gangi. Mér fannst ég skynja eitthvað en áttaði mig ekki á þessu. Ég setti mig í stellingar og smellti mynd af merki bankans við anddyri hússins. Hvað heyri ég? þar sem ég var að munda myndavélina heyrði ég talað á framandi tungumáli. Fannst samt eins og ég kannaðist eitthvað við skylt tungumál minni ástkæra móðurmál. Ég leit við og hvað sá ég? út gekk hinn nýi Seðlabankastjóri sem heilög Jóhanna hafði ráðið fyrr um morguninn. Nú hafði hlaupið á snærið hjá Palla. Ég snéri mér við og smellti af kauða einni mynd.

stjorinn.jpg

Ljósmyndari og aðstoðarmaður með í för. Nú var ég spenntur. Ekki var ég boðaður en skyndilega komin í feitt. Hver verða næstu skref. Jú þeir ganga að stað og taka strauið upp að  styttu Ingólfs. Ég gekk upp að rótum styttunnar og smellti í gríð og erg ó áreyttur.

stjorinn01.jpg

Ég velti því fyrir mér ,,ætli ég hafi verið fyrsti úr hópi hins sauðsvarta almúga sem tók mynd af manngarminum í embætti Seðlabankastjóra? ég veit ekki en ég sá ekki fleiri á vettvangi. En ég var þó hugsi og velti því fyrir mér hvað var maðurinn að gera við rætur Ingólfs og láta mynda sig? Var hann að veðsetja karlinn? er nema von maður spyrji sig. 

Skyndilega tók ljósmyndarinn saman föggur sínar og þeir tóku á rás. Ég beið átekta, hvert voru þeir að fara. Kom á daginn að leiðin lá bara í bankann aftur. 

stjorinn03_803743.jpg

Ég lét ekki verða af því að elta þá en hefði kannski betur gert það. Hver veit hvað þeir væru að fara bralla?

Leið mín lá niður hólinn í átt að Stjórnarráðinu og ætlaði að vita hvort ég næði á heilagri Jóhönnu. En ég lét ekki reyna á það heldur lét mér duga að stoppa og taka myndir af útvörðunum sem þar eru þ.e. Stjáni 10. og Hannes Hafstein.

Það vakti þó athygli mína það sem einhverjir höfðu skrifað í snjófölina við rætur hólsins sem Ingólfur stendur á.

girls2009.jpg

Og...

island2009.jpg

kristjan10.jpg

Kristján 

hanneshafstein.jpg

Og Hannes.

kofitomasar.jpg

Þegar hér var komið við sögu var löngun í kaffi orðið óbærilegt. Stefnan tekin á kaffihús. Kofi Tómasar frænda þangað skildi haldið. Þar sem ég sat og sötraði kaffi innan um ,,Trefilmenni" eins og Gunnar bloggvinur minn kallar þetta lið sem sækir kaffihúsin hvað mest varð mér hugsað til þess hvað Ísland í dag er skrítið. Báðir afgreiðslumennirnir af erlendu bergi brotnir og töluðu vægast sagt undarlega Íslensku. Og ekki nóg með það mér fannst eins og að það væri bara töluð erlend tungumál á þessu kaffihúsi. Eftir óformlega könnum taldist mér til að Íslenska hafi verið töluð á tveimur borðum en nótaben ég taldi mitt borð með og ég hafði engan til að tala við enda sat ég einn við það borð. Ofan á allt þetta lögðust svo vangaveltur mínar um hvert Ísland er komið Norskur seðlabankastjóri og guð má vita hvað. 

Mér varð óneytanlega létt þegar síminn hringdi og kunnugleg rödd í símann sagði ,,við erum búnar hittu okkur í bílahúsinu eftir 10 mínútur. Leið mín lá í Engjaselið til Helgu og Tedda. Þar beið okkar um kvöldið dýrindis steik að hætti húsbóndans. Já lífið er undarlegt, en samt dásamlegt, stundum og alla vega þegar maður kemst í svona feitt.

teddi.jpg

Já læt ég þar með þessari langloku skrif og myndabloggi lokið að sinni. Meira síðar. 

Málsháttur dagsins: Þeim er frama von sem fer á milli kónga


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Páll, þú ert efni í fyrsta flokks rannsóknarblaðamann.

S. Lúther Gestsson, 2.3.2009 kl. 19:09

2 identicon

Þú hefur vonandi tekið snjókeðjurnar með suður, væni!  Nú er allt á kafi í Reykjavík, eins og miðbæjarrotturnar myndu orða það.

Systir mín sendi mér SMS frá Ísafirði í morgun og sagði: "Jeminn, bara eins og í gamla daga" 

Þegar systir segir að snjórinn á Ísafirði sé eins og í gamla daga - þá er snjór á Ísafirði.....

Gunnar Th. (IP-tala skráð) 3.3.2009 kl. 20:22

3 Smámynd: Páll Jóhannesson

Lúther! Rannsóknarblaðamaður og paparassi

Gunnar! Ég hef ekki notað keðjur frá því að ég var 17 eða 18 ára og var að leika mér á Willys Jeester í öllum snjósköflum sem þá fundust. Einhvern vegin finnst mér eins og það hafa alltaf verið meiri snjór í þá daga. Já þessar miðbæjarrottur og trefilmenni eins og þú kallar þennan hóp er sérkennilegur hópur.

Páll Jóhannesson, 4.3.2009 kl. 10:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

235 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband