18.12.2008 | 08:38
Gullmoli dagsins
Í dag eru liðin nákvæmlega 7 ár frá því að þessi ljúfa stelpa leit dagsins ljós. Elín Alma er næst elst barnabarna okkar. Hún er líkt og systkini sín þvílíkur gullmoli og gleðigjafi að stór orð þarf til að lýsa henni. Elín er skýrð að hluta til í höfuðið á móður sinni sem ber Elínar nafnið sem sitt annað nafn og einnig er þetta komið frá langömmu hennar í móðurætt. Í dag verður eðlilega boðið uppá kaffi í tilefni dagsins þótt aðal veislan verði ekki fyrr en um helgina. En það er ljóst að afi mætir í dag og morgun og aftur um helgina og sér til þess að góðgæti sem borið verður á borð skemmist ekki. Elsku Elín Alma til hamingju með afmælið.
Óhætt að segja að það verði mikið að gera í dag. Í hádeginu verður haldinn 23. súpufundur Þórs, Greifans og Vífilfells. Það verða góðir gestir sem sitja við háborðið og flytja framsögu og svara fyrirspurnum. Þetta eru Ólafur Rafnsson Forseti ÍSÍ og Helga Steinunn Guðmundsdóttir formaður Samherjasjóðsins. Ef þið viljið lesa meira þá farið á heimasíðu Þórs. Fundurinn hefst kl. 12:00 og stendur til kl. 13:00. Endilega drífa sig súpa, brauð og kaffi og ávaxtatoppur á aðeins 500 kr.
Í kvöld verður svo stórleikur í höllinni þar sem án efa sterkasta körfuboltalið Íslands í dag kemur í heimsókn. Ég er að tala um vesturbæjarstórveldið KR með þá Jón Arnór og Jakob Örn innanborðs. Í gær birti ég viðtal á heimasíðu Þórs við Benedikt þjálfara KR. Þar má sjá m.a. hverju Benni svaraði þegar hann var spurður að því hvort hann ætli að fá sér bauk eða fara á Bautann, farið og lesið viðtalið það má sjá hér. Einnig getur fólk lesið upphitunarpistil á heimasíðunni þar sem ég spái örlítið í spilin og birti einnig stutt viðtal við Hrafn þjálfara Þórs sjá hér. Leikurinn hefst kl. 19:15. Áfram Þór alltaf, allstaðar.
Í morgun kom Hurðarskellir til byggða hann er sjöundi í röð bræðra sinna. Sá skrítni karl kemur venjulega með brölti og braki og brestum miklum og hurðarskellum. En hér í Drekagilinu varð fólk lítið vart við hann enda engir skór út í glugga. Um hann var ort forðum daga.
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.
Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.
Á morgun kemur svo Skyrgámur og hann fær sína lesningu þegar þar að kemur.
Málsháttur dagsins: Betra er bæn að neita en með eftirtölum veita
335 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Flickr myndasíður
- Palli Jóh Hér birti Palli Jóh uppáhaldsmyndirnar sínar.
- Dagga -flikkar
- Runólfur
- Svanný
- Rúnar Haukur
- Merkjamanni
- Þórólfur Sveinsson
- Þórður Halldórsson
- Bói Flickr
- Ívan flikkar
- Sigfríður Guðný
Íþróttaklúbbar.
- Íþróttafélagið Þór
- Manchester City
- Chicago Bulls
- Arsenal fyrir Sölla
- Knattspyrnusamband Íslands
- Körfuknattleikssamband Íslands
- Karfan.is
Áhugaverðar síður.
- Pólitíkin
- Gunnar Ísfirðingur
- Hallandsnes
- Ljósstaðafólkið
- Samfylkingin á Akureyri
- Ungir jafnaðarmenn á Akureyri
- Skúli miðill
- Vísisblogg hjá Gunnari Th. Afbrags góður bloggari.
- Gummi Odds í Ameríku Doktor í smíðum
- Valberg og Steinun blogga
- Palli Jóh á Youtube Myndbönd Palla Jóh
Fjölskyndan bloggar.
Nýjustu færslur
- 4.4.2012 Myndbands- og myndablogg
- 14.3.2012 Smá uppfærsla
- 24.12.2011 Gleðileg jól
- 1.8.2011 Á lífi
- 25.4.2011 Að leika við hvurn sinn fingur
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 4
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 190702
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með barnabarnið . Vonandi gengur Þórsurum vel í kvöld.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 18.12.2008 kl. 14:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.