Leita í fréttum mbl.is

Stjörnuhrap

Brá mér í höllina í kvöld og horfði á mína menn í Þór taka á móti Stjörnunni úr Garðabæ í 6. umferð Iceland Express deild karla. Bæði liðin voru með 4 stig fyrir leikinn og á svipuðu róli í deildinni. Skemmst er frá því að segja að mínir menn lönduðu öruggum 99-89 sigri í leik þar sem gestirnir voru yfir lengst af í leiknum. Mínir menn hristu af sér slenið í 4. leikhlutanum og hreinlega gerðu út um leikinn á síðustu 2-3 mínútunum. Flotta umfjöllun má lesa á heimasíðu Þórs sem og ummæli leikmanna í leikslok. Þá er einnig að finna upphitunarpistillsem birt var fyrir leikinn fyrir þá sem vilja. Ég vildi stjörnuhrap og varð að ósk minni - Áfram Þór alltaf, allstaðar. Þá er einnig gaman að geta sagt frá því að Akureyri handboltafélag vann enn einn sigurinn í N1 deildinni og trónir liðið á toppi deildarinnar. Flott gengi hjá þessu liði - Áfram Akureyri.

Mínir menn í Manchester City léku í Evrópukeppninni i kvöld og tóku þeir á móti FC Twente á borgarleikvanginum í Manchester. City sigraði í þeim leik 3 - 2 þar sem þeir Wrigth Phillips, Robinho og Benjani skoruðu mörk City. Lesið um þann leik hér

Annars gengur lífið svona sinn vanagang þó með óvenjulegum hætti þó. Kristnes á daginn og slappað af heima á kvöldin. Þegar dagskrá morgundagsins er lokið er prógrammið hálfnað.

Nú svo fór eins og mig grunaði og í raun óskaði þ.e. að Obama sigraði í forsetakosningum vestra í gær. Fyrsti blökkumaðurinn sem nær kjöri í embætti forseta í USA. Verður gaman að fylgjast með hvernig honum mun vegna í embætti. Hann tekur við slæmu búi enda kann það ekki góðri lukku að stýra að hafa stríðsherra við stjórnvölin eins og Bandaríkjamenn hafa þurft að búa við s.l. 8 ár.

Fróðleikur dagsins: Borgarmerki hinnar fornu rómversku borgar Pompeii var vængjaður getnaðarlimur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

233 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband