19.10.2008 | 13:46
Næring hugans
Hér á Íslandi líkt og út um allan heim er hafin vinna við að byggja upp hagkerfi heimsins eftir að pýramída byggingar fjármálasnillinga heimsins hrundu. Þeir hrundu af því að þeir stóðu á haus. Nú sem aldrei fyrr er nauðsýnlegt fyrir land og þjóð að snúa bökum saman og sýna æðruleysi. Menn mega ekki gleyma því að næra sálina til að halda geðheilsunni í þokkalegu standi. Í kvöld ætla ég að næra sálina sérlega með því að fara á völlinn. Fyrsti heimaleikur minna manna í Þór þegar þeir taka á móti nýliðum Breiðabliks í körfubolta á nýlögðu parketgólfi íþróttahallarinnar. Fyrir þá sem vilja er hægt að lesa ítarlegan upphitunarpistil á heimasíðu Þórs. Ég og Sölli mætum á svæðið með penna og myndavél og færum svo fréttir af gangi leiksins að honum loknum. Þú mætir á völlinn nýtur þess að horfa á skemmtilega íþrótt og öskrar þig hásann - Áfram Þór.
Að horfa á körfubolti er góð afþreying og það er einnig svo margt fleira sem hægt er að gera til að dreifa huganum. Góðir þættir í sjónvarpi t.d. er ein góð afþreying þó í hófi. Spaugstofan sýndi okkur í gær hvaða augum þeir sjá ástandið í dag. Þátturinn í gær var hreinlega snilld. Fær 10 af 10 í einkunn.
Senn er sá tími liðin sem við köllum haust. Vetur konungur mun hægt og bítandi taka völdin. Spurningin er svo bara hversu hörðum eða mjúkum höndum hann mun fara um okkur? Snjólétt, snjóþungt, mildur, vætusamur, hlýr eða frostharka gildir einu. Það eina sem við verðum að hafa hugfast er að vera meðvituð um hvar landið okkar er staðsett á móður jörð. Eftir vetur kemur vor og svo sumar og........ gengur þetta allt sinn vanagang málið er bara vera sáttur við það sem maður hefur og kunna meta það.
Í lokin læt ég fylgja með mynd sem ég tók í byrjun mánaðarins þar sem ég reyndi að festa á kubb stemmingu haustsins. Stilla falleg litabrigði og fyrstu snjókorn haustsins fallin. Myndin er tekin af Drottningabrautinni í átt að Minjasafninu, sem þó sést ekki lengur vegna trjáa.
Málsháttur dagsins: Sjáðu hvað þér sæmir, hugsaðu hvað þér hæfir336 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Flickr myndasíður
- Palli Jóh Hér birti Palli Jóh uppáhaldsmyndirnar sínar.
- Dagga -flikkar
- Runólfur
- Svanný
- Rúnar Haukur
- Merkjamanni
- Þórólfur Sveinsson
- Þórður Halldórsson
- Bói Flickr
- Ívan flikkar
- Sigfríður Guðný
Íþróttaklúbbar.
- Íþróttafélagið Þór
- Manchester City
- Chicago Bulls
- Arsenal fyrir Sölla
- Knattspyrnusamband Íslands
- Körfuknattleikssamband Íslands
- Karfan.is
Áhugaverðar síður.
- Pólitíkin
- Gunnar Ísfirðingur
- Hallandsnes
- Ljósstaðafólkið
- Samfylkingin á Akureyri
- Ungir jafnaðarmenn á Akureyri
- Skúli miðill
- Vísisblogg hjá Gunnari Th. Afbrags góður bloggari.
- Gummi Odds í Ameríku Doktor í smíðum
- Valberg og Steinun blogga
- Palli Jóh á Youtube Myndbönd Palla Jóh
Fjölskyndan bloggar.
Nýjustu færslur
- 4.4.2012 Myndbands- og myndablogg
- 14.3.2012 Smá uppfærsla
- 24.12.2011 Gleðileg jól
- 1.8.2011 Á lífi
- 25.4.2011 Að leika við hvurn sinn fingur
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 190695
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
brrrrr mér finnst þetta meira vetur
Anna Bogga (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 08:49
Innlitskvitt kæri Palli
Jac "Bói" Norðquist
Jac Norðquist, 23.10.2008 kl. 17:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.