8.7.2008 | 23:11
Menn verða kunna sig
Það virðist vera í tísku á Íslandi að drulla yfir allt og alla og kenna öllum öðrum en sjálfum sér um þegar menn hafa kúkað í buxurnar. Landsþekktir þjálfara sem höndla ekki mótlæti telja sig hafa heimild til þess að taka mann og annan af lífi. Nýjasta dæmið birtist í viðtali sem vefsíðan fotbolti.net tók við þjálfara sem sagði starfi sín lausu og lætur svo gamminn geysa og fretar innstæðulaust í allar áttir fyrir það eitt að ráða ekki við það verkefni sem hann tók að sér. Reyndar er ekki um landsþekktan þjálfara að ræða. Ef menn ættu inneign fyrir öllu sínu drulli þá væri þetta í góðu lagi. En, málflutningur þessara manna dæmir sig sjálfur þeir ættu að líta í eigin barm og laga til í sínum eigin ranni áður en þeir halda að það sé í þeirra verkahring að taka til hjá öðrum, þeirra er skömmin.
Las mér til mikillar ánægju að olíuverð sé á niðurleið. Veit svo sem ekki hvort maður eigi að þora gleðjast, en er á meðan er.
Stelpurnar okkar í Þór/KA héldu suður með sjó og sóttu Keflvíkinga heim í Landsbankadeild kvenna. Skemmst er frá því að segja að Stelpurnar okkar unnu sanngjarnan 0-5 sigur. Landsliðskonan okkar Rakel Hönnudóttir fór mikinn og skoraði 3 mörk, Ivana Ivanovic setti 1 mark og Bojana Besic 1. Eftir sigurinn eru Stelpurnar okkar komnar í 6. sætið með 10 stig og eiga enn leik til góða. Greinilegt að Dragan og Moli sem eru þjálfara liðsins eru að gera fína hluti. Áfram Stelpur í Þór/KA.
Fróðleikur dagsins: Oftar er maðkur í mysu en maður í messu.249 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Flickr myndasíður
- Palli Jóh Hér birti Palli Jóh uppáhaldsmyndirnar sínar.
- Dagga -flikkar
- Runólfur
- Svanný
- Rúnar Haukur
- Merkjamanni
- Þórólfur Sveinsson
- Þórður Halldórsson
- Bói Flickr
- Ívan flikkar
- Sigfríður Guðný
Íþróttaklúbbar.
- Íþróttafélagið Þór
- Manchester City
- Chicago Bulls
- Arsenal fyrir Sölla
- Knattspyrnusamband Íslands
- Körfuknattleikssamband Íslands
- Karfan.is
Áhugaverðar síður.
- Pólitíkin
- Gunnar Ísfirðingur
- Hallandsnes
- Ljósstaðafólkið
- Samfylkingin á Akureyri
- Ungir jafnaðarmenn á Akureyri
- Skúli miðill
- Vísisblogg hjá Gunnari Th. Afbrags góður bloggari.
- Gummi Odds í Ameríku Doktor í smíðum
- Valberg og Steinun blogga
- Palli Jóh á Youtube Myndbönd Palla Jóh
Fjölskyndan bloggar.
Nýjustu færslur
- 4.4.2012 Myndbands- og myndablogg
- 14.3.2012 Smá uppfærsla
- 24.12.2011 Gleðileg jól
- 1.8.2011 Á lífi
- 25.4.2011 Að leika við hvurn sinn fingur
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 190807
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Áfram stelpur
Rúnar Haukur Ingimarsson, 8.7.2008 kl. 23:34
Þess má til gamans geta að ég var að vinna með ofangreindum þjálfara Mola í Útgerðarfélagi Akureyringa líklega um 1985-1987 og eyddum við yfieitt hádegishléinu í að spila borðtennis í matsal ÚA. Ég man ekki eftir að hann hafi unnið einn einasta leik. Fóru því yfirleitt matarmiðarnir hans í minn vasa.
S. Lúther Gestsson, 9.7.2008 kl. 01:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.