11.5.2008 | 22:32
Hvað er svona merkilegt við þennan dag?
Ég verð stundum alveg hringlandi ruglaður á þessum frídögum. Hvað gerðist á uppstigningardag? af hverju er Hvítasunnudagurinn haldin hátíðlegur og af hverju er annar í Hvítasunnu og ......?
Konan mín á alltaf svör við þessum bjána spurningum mínum. Hvað veldur er ég svona andsk... vitlaus eða hún svona ferlega gáfuð? Sennilega sitt lítið af hvoru. Halldór stóri bró leit við í heimsókn í dag ásamt konu og tveimur af elstu börnum sínum. Langt síðan þau hafa öll kíkt. Hann búsettur í stórbænum sem kenndur er við Mosa, dóttir hans og sonur bæði búsett í smábænum sem kenndur er við reyk og vík. Telma sem er elst barna þeirra er lögfræðingurinn í ættinni. Þangað vonast maður til að geta leitað ef að manni verður sótt, já varið ykkur. Sprenglærð skvísa hún Telma og heimsvön enda búið víða erlendis.
Bjarmi er svo miðbarnið. Hann kemur úr ætt þar sem mjög margir hafa lært húsasmíði. Og auðvitað sannast á honum máltækið góða ,,sjaldan fellur smiðurinn langt frá stillansinum" hann er lærður húsasmiður. Yngsta barnið þeirra hann Bjarki Þór varð eftir heima enda getur hann ekki verið þekktur fyrir það að ferðast með mömmu og pabba, iss það gera bara smábörn. En að öllu gamni slepptu gaman að fá þau í heimsókn, takk fyrir og verið velkomin aftur og aftur og aftur og...........
Þá var einnig tengdasonurinn í heimsókn með barnabörnin. Ég sá mér leik á borði og lagði þessa kvikindislegu spurningu fyrir hópinn ,,hvað gerðist á Hvítasunnu?". Þögn sló á hópinn, vandræðaleg þögn ríkti. Talsverður tími leið þar til sá fyrsti þorði að svara ,,ég veit það ekki". Þegar allir höfðu játað að vita ekkert hvað sé svona merkilegt við þennan dag, kom svarið. Frú Margrét vissi það, nema hvað? Það var ekki laust við það að maður hafi verið hálf skömmustulegur.
Í blá lokin já það er farið að vora að nýju svo vonandi þarf ég ekki að moka sólpallinn fyrr en í haust .... þótt allt hafi stefnt í það á föstudagskvöldið.....
Ætla ekki að vera með málshátt dagsins eða slagorð. Þess í stað set ég inn spurningu dagsins, sem hljóðar svo .....
,, Hvað á maður dagsins á morgun og Hildur Vala fyrrum Idol stjarna sameiginlegt?".
249 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Flickr myndasíður
- Palli Jóh Hér birti Palli Jóh uppáhaldsmyndirnar sínar.
- Dagga -flikkar
- Runólfur
- Svanný
- Rúnar Haukur
- Merkjamanni
- Þórólfur Sveinsson
- Þórður Halldórsson
- Bói Flickr
- Ívan flikkar
- Sigfríður Guðný
Íþróttaklúbbar.
- Íþróttafélagið Þór
- Manchester City
- Chicago Bulls
- Arsenal fyrir Sölla
- Knattspyrnusamband Íslands
- Körfuknattleikssamband Íslands
- Karfan.is
Áhugaverðar síður.
- Pólitíkin
- Gunnar Ísfirðingur
- Hallandsnes
- Ljósstaðafólkið
- Samfylkingin á Akureyri
- Ungir jafnaðarmenn á Akureyri
- Skúli miðill
- Vísisblogg hjá Gunnari Th. Afbrags góður bloggari.
- Gummi Odds í Ameríku Doktor í smíðum
- Valberg og Steinun blogga
- Palli Jóh á Youtube Myndbönd Palla Jóh
Fjölskyndan bloggar.
Nýjustu færslur
- 4.4.2012 Myndbands- og myndablogg
- 14.3.2012 Smá uppfærsla
- 24.12.2011 Gleðileg jól
- 1.8.2011 Á lífi
- 25.4.2011 Að leika við hvurn sinn fingur
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Já mikið er nú gott að hafa lögfræðing,húsasmið,sjúkraliða og rafvirkja alla í sömu family
Svo er sálfræðingur á leiðinni þar er einnig viðskiptafræðingur
Pípari og vantar bara geðlæknir til að fullkomna þetta
Hrönn Jóhannesdóttir, 12.5.2008 kl. 21:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.