15.2.2008 | 14:51
Góðs vinar minnst
Í dag vil ég minnast látins vinar. Hann leit dagsins ljós í fyrsta sinn árið 1958 og hefði því orðið 50 ára í dag væri hann á lífi.
Áka Elíssyni kynntist ég árið 1979 þegar ég hóf nám í húsasmíði. Þá unnum við saman hjá bygginga fyrirtæki, sem þá var starfandi hér í bæ og hét Smári h/f. Áki hóf smíðanám strax að loknu grunnskólanámi svo að þegar við kynntumst var hann útlærður og naut ég liðssinnis hans meðan ég var í námi.
Með okkur Áka tókst mikil vinátta. Ekki bara vinátta með okkur heldur varð mikil vinátta milli fjölskyldu okkar, sem varir enn. Áki veiktist mjög alvarlega og þau veikindi drógu hann til dauða á örfáum dögum. Hann lést árið 1994 aðeins 36 ára gamall.
Þegar Áki lést höfðu þau hjónin eignast 4 börn. Þrjár stúlkur og einn son. Sonurinn yngstur ekki tæplega tveggja ára gamall og elsta dóttirin á 14. ári og var fermd skömmu eftir andlát föður síns.
Ég er þakklátur fyrir það að hafa fengið að kynnast þessum mæta manni. Ég er einnig þakklátur fyrir það að hafa fengið að kynnast fjölskyldu hans og þá tryggð sem ríkt hefur á milli okkar. Ég sakna þessa mikla vinar míns, en ég læt þær góðu minningar sem ég á um hann verða mér hvatning í lífinu.
Málsháttur dagsins: Oft er sorgfullt brjóst undir sjálegri skikkju
336 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Flickr myndasíður
- Palli Jóh Hér birti Palli Jóh uppáhaldsmyndirnar sínar.
- Dagga -flikkar
- Runólfur
- Svanný
- Rúnar Haukur
- Merkjamanni
- Þórólfur Sveinsson
- Þórður Halldórsson
- Bói Flickr
- Ívan flikkar
- Sigfríður Guðný
Íþróttaklúbbar.
- Íþróttafélagið Þór
- Manchester City
- Chicago Bulls
- Arsenal fyrir Sölla
- Knattspyrnusamband Íslands
- Körfuknattleikssamband Íslands
- Karfan.is
Áhugaverðar síður.
- Pólitíkin
- Gunnar Ísfirðingur
- Hallandsnes
- Ljósstaðafólkið
- Samfylkingin á Akureyri
- Ungir jafnaðarmenn á Akureyri
- Skúli miðill
- Vísisblogg hjá Gunnari Th. Afbrags góður bloggari.
- Gummi Odds í Ameríku Doktor í smíðum
- Valberg og Steinun blogga
- Palli Jóh á Youtube Myndbönd Palla Jóh
Fjölskyndan bloggar.
Nýjustu færslur
- 4.4.2012 Myndbands- og myndablogg
- 14.3.2012 Smá uppfærsla
- 24.12.2011 Gleðileg jól
- 1.8.2011 Á lífi
- 25.4.2011 Að leika við hvurn sinn fingur
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 190695
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Blessuð sé minning Áka
Gleymi því trúlega seint daginn sem hann dó, en þá voru um 2 vikur í ferminguna mína & Fjóla með bestu vinkonum mínum, átti að fermast 2 vikum á eftir mér. Maður saknar hans enn & hversu góður hann var.
Dagga (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 15:44
Palli minn. Það er gott að eiga góðar minningar til að ylja sér við. Áka og hans fjölskyldu kynntist ég á þínu heimili, vandað og gott fólk. Blessuð sé minning Áka Elíassyni.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 15.2.2008 kl. 15:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.