20.1.2008 | 23:49
Hvaða hnífa ætli þeir brúki?
Mikill íþróttadagur að baki. Byrjaði á því að fara upp í Síðuskóla og horfði á fyrri hálfleik hjá kvennaliði Þórs sem tók á móti liði Snæfells. Hefði á sama tíma vilja vera í Boganum í skítakulda og fylgjast með Þórsliðinu í fótbolta taka á móti Dalvík/Reyni.
Það skiptust vissulega á skin og skúrir. Stelpurnar máttu þola tap á sama tíma og fótboltastrákarnir lönduðu stórum sigri. Lárus Orri og Palli Gísla létu 2.fl karla spila þennan leik líkt og þeir gerðu um liðna helgi gegn Tindastóli. Þeir gefa ungdómnum tækifæri á að sýna sig og sanna og ná í reynslu. Strákarnir þökkuðu traustið í dag líkt og í leiknum gegn Tindastóli og sömu úrslit litu dagsins ljós þ.e. 6-1 fyrir Þór.
Fór svo í kaffi í Lönguhlíðina og horfði á leik Manchester City og West Ham. Er þetta fjórða viðureign þessara liða í vetur. Manchester City vann fyrir viðureignina í deildinni á heimavelli West Ham og í dag gerðu þessi lið jafntefli 1-1 á heimavelli City. Þá hafa þessi lið mæst tvívegis í bikarkeppninni og þar er eitt jafntefli og einn sigur hjá Manchester City. Eru lið Manchester því enn ósigrað í deildinni á heimavelli sem er bara í fínu lagi og 5. sætið er okkar um þessar mundir. Ekki skemmdi það stemminguna að Dagga var búinn að baka í bak og fyrir svo að nóg var að hafa með kaffinu meðan á leik stóð.
Var nokkuð viss um að Íslendingar myndu fá rassskell gegn Frökkum og gjóaði ekki einu sinni öðru auganu á þann leik.
Ég verð að játa að ég hef lúmskt gaman að því að fylgjast með hnífakasti framsóknarmanna. Á meðan hnífar standa í baki hjá hverjum einum og einasta framsóknarmanni, heldur Guðni framsóknarpabbi því fram að ekkert sé að. Þetta eru jú bara deilur tveggja manna. Ja hérna og sveim mér þá. Nú er illa komið fyrir Guðna ef hann hefur af þessu engar áhyggjur bara af því að þetta eru tveir menn...... eru mikið fleiri í flokknum? Hnífakast hér og þar og allstaðar og brátt mun Circushús framsóknar breytast í alvöru líkhús. Ég velti því svo fyrir mér ,,hvaða gerð af hnífum ætli þeir séu að brúka?
Málsháttur dagsins: Hætt er þeim við falli sem hátt hreykist.249 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Flickr myndasíður
- Palli Jóh Hér birti Palli Jóh uppáhaldsmyndirnar sínar.
- Dagga -flikkar
- Runólfur
- Svanný
- Rúnar Haukur
- Merkjamanni
- Þórólfur Sveinsson
- Þórður Halldórsson
- Bói Flickr
- Ívan flikkar
- Sigfríður Guðný
Íþróttaklúbbar.
- Íþróttafélagið Þór
- Manchester City
- Chicago Bulls
- Arsenal fyrir Sölla
- Knattspyrnusamband Íslands
- Körfuknattleikssamband Íslands
- Karfan.is
Áhugaverðar síður.
- Pólitíkin
- Gunnar Ísfirðingur
- Hallandsnes
- Ljósstaðafólkið
- Samfylkingin á Akureyri
- Ungir jafnaðarmenn á Akureyri
- Skúli miðill
- Vísisblogg hjá Gunnari Th. Afbrags góður bloggari.
- Gummi Odds í Ameríku Doktor í smíðum
- Valberg og Steinun blogga
- Palli Jóh á Youtube Myndbönd Palla Jóh
Fjölskyndan bloggar.
Nýjustu færslur
- 4.4.2012 Myndbands- og myndablogg
- 14.3.2012 Smá uppfærsla
- 24.12.2011 Gleðileg jól
- 1.8.2011 Á lífi
- 25.4.2011 Að leika við hvurn sinn fingur
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 190807
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.