Leita í fréttum mbl.is

Gleðilegt nýtt ár.

Gamlársdagur fór að stórum hluta fram í eldhúsinu i það minnsta hjá mér. Líkt og í fyrra var ákveðið að elda stórann kjúlla - þ.e.a.s. kalkúna. Þvílík snilldar fæða. Eins og þeir sem til þekkja þarf að hafa fyrir því að elda kvikindið, og biðin alveg þess virði.

Fjölmennt og góðmennt var svo enda þrjár fjölskyldur sem nutu þess að borða saman. Og líkt og í fyrra þá komu foreldrar mínir sem eru sannkölluð ættarhöfuð og nærvera þeirra  gerðu kvöldstundina fullkomna. Þá voru einnig Dagga og Jói ásamt barnabörnum mínum svo að fjölmennt var við kvöldverðarborðið.

Annáll Stövar2 klikkaði ekki fremur en fyrri ár, en þar á bæ gera menn árið upp með ólíkum hætti en gert er á Rúv. Skaupið, svei mér þá ég veit ekki hvort ég á að gefa því möguleik eður ei? Held að fyrsta brosið/glottið hafi komið á 5.-6. mínútu. Alla vega held ég að fyrsta skrefið að því að láta Skaupið heppnast væri að láta Jón Gnarr ekki koma nálægt því á nokkurn hátt.

Engin brenna vegna ótta við óhagstætt veður. Samt ágætis veður framan af kvöldi, en heldur hvessti og tók að rigna þokkalega þegar leið á nóttina. Brenna í kvöld með tilheyrandi flugeldasýningu, og hver veit nema maður skelli sér á brennu?

Skruppum niður í Lönguhlíð á öðrum tímanum í nótt og spiluðum með fjölskyldunni þar Monopoly, sem nokkurs konar nýrri útgáfa af Matador.

Nýársræða hr. Ólafs Ragnars Grímssonar forseta góð. Þar kom í sjálfu sér ekkert á óvart, nokkurn vegin hefðbundið. Kom fram í máli hans að hann mun gefa kost á sér til áframhaldandi setu í embætti Forseta Íslands. Þjóðin hlýtur að fagna þeim tíðindum.

Við feðgar skruppum niður í Lönguhlíð til þess að horfa á Arsenal - West Ham. Úrslitin komu í sjálfu sér ekkert á óvart. 2-0 sigur Arsenal síst og stór. Erum svo boðin í mat í kvöld hjá Döggu og Jóa, meiri matur, meira nammi og sumir blása út aldrei sem fyrr og aðhald strax eftir daginn í dag nauðsýnlegt.

Pæling dagsins:  Kom eggið á  undan  hænunni?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Takk fyrir síðast. Mér fannst Annáll stöðvar 2 .betri en Hjá RUV. Áramótaskaupið fannst mér gott. Nauðsynlegt að breyta til og það gerði sannarlega þetta Skaup.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 1.1.2008 kl. 18:05

2 identicon

Gleðilegt nýtt ár frændi.  Hér var mikið hlegið af skaupi og strax á fyrstu augnablikinum.  En hey það er og verður alltaf erfitt að gera öllum til geðs. 

Anna Bogga (IP-tala skráð) 1.1.2008 kl. 19:12

3 Smámynd: Páll Jóhannesson

Já kannski var Skaupið ágætt þegar upp er staðið, svo getur líka verið að snúrurnar séu lengri hjá sumum, sem gerir þetta tormeltara en ella, hver veit?

Páll Jóhannesson, 2.1.2008 kl. 11:36

4 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já Páll það er aldurinn, er þaki? Mar er bara LOST. 

Ég veit ekki mér fannst það ekki fyndið en margir leikaranna mjög góðir og margt annað - eini sketsinn sem ég brosti yfir var um okkur!

Hann var fínn. Gervin á þekktu fólki voru léleg, nema mér fannst Jón Gnarr snillingur í að ná framburði Bubba.

Edda Agnarsdóttir, 2.1.2008 kl. 23:32

5 identicon

Gleðilegt árið, allir þarna norðan fjalla og takk fyrir kveðjurnar. Á mínu heimili er kalkúnn kallaður fimbulhænsni.

Veit ekki með skaupið. Eftir svona tíu mínútur var ég farinn að hugsa um að standa upp úr hægindastólnum. Eftir tuttuguogfimm mínútur framkvæmdi ég það og settist við tölvuna. Mér skilst að ég hafi ekki misst af miklu. Nennti ekki að horfa á Pressuna og sá aðeins restina af Breiðuvíkurmyndinni. Ætla hins vegar að kaupa hana á dvd.

Fariði varlega í rokinu og rigningunni/snjónum og hálkunni og Páll! Ef þú ert á ferðinni út við Krossanes þá væru myndir af ganginum þar ekki illa þegnar!

Áramótakveðja, Gunnar Th.

Gunnar Th, (IP-tala skráð) 3.1.2008 kl. 00:02

6 Smámynd: Páll Jóhannesson

Sæll Gunnar! ég hendi nýjum myndum af Krossanessvæðinu inn hið fyrsta.

Páll Jóhannesson, 3.1.2008 kl. 00:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

236 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband