Leita í fréttum mbl.is

Ekkert mál að hætta - hef hætt milljón sinnum.....

retta_jpg,,Palli nú hættum við að reykja" sagði einn fyrrum skipsfélagi minn þegar togarinn sem við vorum á var rétt skriðin frá ÚA bryggjunni. Já sagði ég nú hættum við, ég glotti við tönn. ,,Nei! ég meina það" sagði félagi minn grafalvarlegur. Veistu þetta er minnsta mál í heimi sagði ég, ég hef hætt milljón sinnum þetta er engin vandi. ,,Palli ég er ekki af fíflast" sagði félagi minn og rétti mér bréf með nikotín tyggjó sex töflur. Gott og vel hættum sagði ég.

Til þess að gera langa sögu stutta þá hef ég aldrei tekið smók eftir þetta. En félagi minn var sprungin áður en togarinn var komin á miðin, gott ef hann var ekki sprungin áður en við komumst út úr fjarðarkjaftinum. Kannski engin furða hann er svo fjandi langur Grin. Þetta var árið 1986 og því eru liðin 21 frá því að mér tókst loksins að hætta reykja, þökk sé Tóta skipsfélaga mínum til margra ára. Þetta er í mínum huga eitt það erfiðasta sem ég hef gert í lífinu en um leið hvað þakklátastur fyrir að hafa geta yfirstigið. Mesta hvatningin var trúlega sú staðreynd að móðir mín hætti 10 mánuðum á undan mér þessum ósið og ég hugsaði sem svo ef mamma getur þetta þá get ég líka, mamma takk fyrir. Það ánægjulegasta í þessu öllu er sú staðreynd að við bæði þ.e. ég og mamma erum enn reyklaus.

Hef ákveðið að hlífa lesendum mínum og skrifa ekkert um sápuóperuna sem sýnd er í Reykjavík þessa dagana þar sem hvert klúðrið og vandræðagangurinn skekur pólitíkusana í borginni. En borgarbúar eiga samt alla mína samúð. En kannski er lækningin á næsta leyti, enda styttist óðfluga eins og óðfluga í að Dagur verði borgarstjóri.

Fundur í kvöld hjá körfuboltastjórn þar sem ég er fundarritari m.a. Hjá þeim er mikið um að vera þessa dagana enda erum við með okkar lið í efstu deild og metnaður manna mikill til að hafa alla umgjörðina eins glæsilega og framast er unnt.

Fróðleikur dagsins: Þegar rússneski leiðtoginn Lenin dó úr heilasjúkdómi 21. janúar 1924 var stærð heila hans einungis fjórðungur af því sem hún var upprunalega.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flottastur frændi.  Til lukku með öll reyklausu árin

Anna Bogga (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 23:07

2 Smámynd: Hrönn Jóhannesdóttir

Stolt af þér með reykingarnar enda alltaf verið svo staðfastur annað en sumir. Jæja en hvað um það hörkuleikur annað kvöld í körfunni vildi að ég gæti komið og fylgst með. Þú bara hvetur mína menn fyrir mig er það ekki?  Kveðja frá Suðurnesjum

Hrönn Jóhannesdóttir, 16.10.2007 kl. 15:53

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Bara kallinn í Mogganum í dag. Til lukkU með það! Já satt er það að það hefur mörgum reynst erfitt að gefa þennan ósiðupp á bátinn sem reykingar eru.

Edda Agnarsdóttir, 16.10.2007 kl. 15:55

4 Smámynd: Páll Jóhannesson

Hrönn mín! vissulega styð ég þína menn í Þór það er ekki nokkur spurning.

Edda! já segðu frægði er rétt handan við hornið... En þetta með reykingarnar - iss engin vandi var búin að hætta milljón sinnum.

Páll Jóhannesson, 16.10.2007 kl. 16:13

5 identicon

'Eg ætla ekki að kommenta sérstaklega á þennan pistil. Mig langar aðeins að óska þér til hamingju með árangurinn og benda jafnframt á skrifarann Valdimar Vilhjálmsson, sem skráður er neðst til vinstri hjá mér. Hann stendur í þessarri sömu baráttu einmitt núna og ég hef kommentað hjá honum í nokkur skipti. Það sem ég skrifaði þar var lítið brot af þeim aðferðum sem ég notaði sjálfur fyrir fjórtán árum rúmum. (ég hætti að morgni þess áttunda febrúar 1993)

Bið að heilsa norður í sæluna!

Gunnar Th. (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 19:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

240 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband