Leita í fréttum mbl.is

Rausnarlegt, ekki satt?

ChallengerÉg sagði ykkur frá því í bloggfærslu fyrr á árinu að ég hafi fengið nóg smáborgarahugsunarhætti og ákveðið að kaupa mér þotu, eins og allt hitt ríka og fræga fólkið. Þotukvikindið er af tegundinni Challenger 604 árgerð 2001. Þegar ég fæ þetta kvikindi afhent hef ég ákveðið að gefa Háskólanum á Akureyri hana bara sísona smá styrkur. Og af hverju að gefa Háskólanum á Akureyri þotuna? jú mér skilst að kennarar við skólann séu sennilega með stærri viðskipavinum flugfélagsins á flugleiðinni Ak-Rey. Fyrir þann pening sem sparast gæti háskólinn ráðið til sín flugmann á þotuna, hagkvæmt ekki satt? Það er bara einn galli á gjöf Njarðar ég veit ekki hvenær ég fæ hana afhenta. Ég hef ekki fengið staðfestingapóst sendan frá framleiðandanum, þess efnis að vélin sé væntanleg í mínar hendur. Ekki viss hvað veldur en gruna að kannski ég hafi ekki greitt nægilega mikið fyrirfram.

En að öllu gamni slepptu þá ber að fagna stórhuga framtaki Róbert Wessman til Háskólans í Reykjavík. Þetta er algerlega frábært að auðmenn skuli renna blóð til skyldunnar og láta fé með þessum hætti renna til samfélagsins. Kannski að aðrir auðmenn sem eyða tug- eða jafnvel hundruðum milljóna í að fá erlenda fræga tónlistarmenn til að raupa í grobb- afmælisveislum sínum. Svo maður tali nú ekki um menn sem kaupa sér t.d. fótboltalið í svipuðum tilgangi einum að grobba sig. Kannski stóru bankarnir, sem vita ekki aura sinna tal svo mikið að þeir ná varla að halda utan um hversu hratt þeir græða ættu nú að fara að fordæmi Róberts og skreppa í heimsókn t.d. í Háskóla Íslands eða Háskólann á Akureyri.

Ég tek ofan fyrir mönnum eins og Róbert Wessman þótt ég viti hvorki haus né sporð á fyrir hans framtaki og hvet aðra slíka til að fara að fordæmi hans. En vissulega væri það gott ef þeir myndu dreifa aurunum þannig að ekki fari  allt í sama grautarpottinn.

Fróðleikur þessa morguns: Andrew Johnson, eftirmaður Abrahams Lincoln, fæddist árið 1808. Lyndon B. Johnson, eftirmaður Johns F. Kennedy, fæddist árið 1908.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

O ég vildi að þú gætir keypt þotu í alvörunni ! En hins vegar er þá ekki hægt að búa til félag um þotukaup og fyrir Akureyringa og lækka ferðakostnaðinn? Spyr sá sem ekki veit.

Edda Agnarsdóttir, 19.9.2007 kl. 12:25

2 Smámynd: Páll Jóhannesson

Auðvitað væri það tær snilld. Einn af eigendum og stofnandi Saga Capital er nýbúinn að fjárfesta í þotu - kannski ég bara setji mig í samband við hann, þetta er víst flott þota og fín í þessa hugmynd

Páll Jóhannesson, 19.9.2007 kl. 14:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

241 dagur til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband