Kosningafundur Stöðvar2 í kvöld var glæsilegur sjónvarpsþáttur í alla staði og Stöð2 til mikilla sóma.
Að mínu mati stóð Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins sig áberandi verst. Hann hefur vondan málstað að verja, tók við sökkvandi skútu á vondum tíma. Er hægt að ætlast til þess að Jóni takist að rétta við skútuna eftir að forveri hans gafst upp og flúði af vettvangi þegar engin byr var í seglin? Er ekki afar eðlilegt að stjórnarflokkarnir tapi fylgi og meirihlutinn sé fallinn samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Félagsvísindastofnun Háskólans?
Auðvitað er það eðlilegt að fólkið í landinu vilji stjórnina frá. Stöðugleikinn, sem var þeirra helsta vopn í seinustu þingkosningum hvarf eins og dögg fyrir sólu - strax að lokum kosningum. Stýrivextir hafa hækkað um þriðjung - stefnan í heilbrigðismálum beið afhroð - þessi stjórn skilur ekki hvað velferðarþjóðfélag þýðir.
Stjórnarflokkarnir gerðu grín að R-listanum sem hafði þrjá borgarstjóra á seinasta kjörtímabili. Þeir hlógu ekki mikið af sínum eigin aumingjaskap í ríkisstjórninni, sem státar af þremur forsætisráðherrum á kjörtímabilinu. Þeir hlógu ekki heldur hátt af tíðum ráðherraskiptum í liði sínu og tilfæringum þegar ráðherrar hlupust undan merkjum þegar gaf á bátinn, og komu sér í þægilegar stöður til þess að þurfa ekki að svara fyrir slæleg vinnubrögð. Oftar en ekki dettur mér í hug máltækið ,,sá hlær best sem síðast hlær" þegar ég hugsa um þessa ríkisstjórn sem virðist vera hljóta þau örlög sem hún á svo sannarlega skilið - FALLINN - það eru ekki grimm örlög, heldur afar sanngjörn.
En þegar upp er staðið er ljóst að ég deili svo sannarlega skoðunum með sérfræðingunum þeim sem sátu í settinu hjá Ingu Lind Karlsdóttir og frænda mínum Steingrími Sævari Ólafssyni þar sem þeim bar öllum saman um að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir væri sigurvegari kvöldsins.
Fróðleikur dagsins: Á brún hengiflugs er aðeins eitt ráð til þess að halda áfram og það er að stíga eitt skref aftur á bak.
248 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Flickr myndasíður
- Palli Jóh Hér birti Palli Jóh uppáhaldsmyndirnar sínar.
- Dagga -flikkar
- Runólfur
- Svanný
- Rúnar Haukur
- Merkjamanni
- Þórólfur Sveinsson
- Þórður Halldórsson
- Bói Flickr
- Ívan flikkar
- Sigfríður Guðný
Íþróttaklúbbar.
- Íþróttafélagið Þór
- Manchester City
- Chicago Bulls
- Arsenal fyrir Sölla
- Knattspyrnusamband Íslands
- Körfuknattleikssamband Íslands
- Karfan.is
Áhugaverðar síður.
- Pólitíkin
- Gunnar Ísfirðingur
- Hallandsnes
- Ljósstaðafólkið
- Samfylkingin á Akureyri
- Ungir jafnaðarmenn á Akureyri
- Skúli miðill
- Vísisblogg hjá Gunnari Th. Afbrags góður bloggari.
- Gummi Odds í Ameríku Doktor í smíðum
- Valberg og Steinun blogga
- Palli Jóh á Youtube Myndbönd Palla Jóh
Fjölskyndan bloggar.
Nýjustu færslur
- 4.4.2012 Myndbands- og myndablogg
- 14.3.2012 Smá uppfærsla
- 24.12.2011 Gleðileg jól
- 1.8.2011 Á lífi
- 25.4.2011 Að leika við hvurn sinn fingur
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Því miður sá ég þetta ekki. En svakalega er þetta glæsileg mynd af okkar skörungi! Ert þú inn undir hjá henni?
Edda Agnarsdóttir, 10.5.2007 kl. 14:17
Mikið vildi ég að ég væri ,,inn undir" hjá henni - nei ég fann þessa mynd á netinu - ferlega fín myn - af finni konu
Páll Jóhannesson, 10.5.2007 kl. 17:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.