14.11.2010 | 23:08
Æðri máttarvöld gera borgarstjóra skráveifu.....
Manni brá óneytanlega í brún þegar leikhússtjórinn í Reykjavík sem gegnir hlutverki borgarstjóra viðraði þá hugmynd að loka skíðasvæði Reykvíkinga hið snarasta til að spara. Honum virtist vera alvara, því miður. Æðri máttarvöld brugðu á það ráð að láta snjóa í erg og gríð svo nú er fólk farið að skíða í Bláfjöllum og búið að slá við opnunartíma síðasta vetrar. Sama er uppi á teningunum hér nyrðra þ.e. hvað snjóinn varðar. Nóg er af honum núna. Auk þess eru við ekki svo mjög uppá æðri máttarvöld komin þar sem bæjarfélagið okkar er svo ríkt að eiga snjóbyssur og við getum framleitt snjó allt árið ef því er að skipta. Já ólíku saman að jafna.
Já nóg er nú af snjónum og meir en nóg. Mér varð hugsað til þess þegar ég komin með þrautir í bak og fyrir við að hreinsa fyrir framan húsið svo fólki væri bjóðandi heim með sæmilegu stolti. Í einni af fjölmörgu pásum sem ég tók, velti ég því fyrir mér hvað ég gæti til bragðs tekið og losnað við snjóinn af minni landareign án mikillar fyrirhafnar. Jú ég bý til gjafabréf og gef Leikhús/borgarstjóra Reykjavíkur allan snjóinn af landareign minni. Þeir bara mæta með græjur á staðinn og fjarlægja snjóinn og koma honum fyrir í Bláfjöllum. Og í kjölfarið er ég nokkuð viss um að nágrannar mínir munu glaðir fylgja í kjölfarið.
En hvað sem því líður þá er vetur konungur svo sannarlega mættur. Reyndar finnst mér skondið að hlusta á fréttir í útvarpi og sjónvarpi af fannferginu á Akureyri. Vissulega hefur talsvert snjóað en að fannfergið hafi skapað jafn mikil vandræði og ljósvakamiðlar greina frá .... af og frá. Þótt ég sé löngu hættur að fara út að leika í snjónum, hef ég samt lúmskt gaman af honum. Ég leik mér ekki í snjónum, ég leik mér með snjóinn þ.e. hann er fyrirmynd, já ég leik með snjó.
Í dag skrapp ég í leikhús og sá verk sem leikfélag Verkmenntaskólans setti upp og heitir ,,Ævintýri - úr litlum bæ í norðri sem við þekkjum svo vel.... Frábær skemmtun. Persónur og leikendur eru eins og gefur að skilja nemendur úr VMA. Þeir skemmtu sér hið besta og það gerðum við áhorfendur líka. Þetta verk er samið af þeim sjálfum í samstarfi við leikstjórann Jón Gunnar Þórðarson sem leikstýrir Rocky Horror og Þögla þjóninum sem nú er verið að sýna hjá LA. Fyrirfram var ég afar spenntur fyrir sýningunni enda á ég talsvert í nokkrum þeim sem að henni standa. Dóttirin kemur að sýningunni þar sem hún kemur að tónlistarflutningi ásamt fleirum og gerðu það með miklum stæl. Þá eru nokkrir af leikurunum eins konar heimalingar hjá okkur, auk þess sem Úlla tilvonandi tengdadóttir okkar leikur stóra rullu þarna og stóð sig hreint út sagt frábærlega. Leikur sjötuga konu og gerir það einstaklega vel. Væri samt ósanngjarnt að gera upp á milli þeirra sem að þessari sýningu koma enda slógu þau öll í gegn - Ég segi bara ef þið eru ekki búinn að sjá þessa sýningu þá drífið ykkur. Takk fyrir mig.
Læt þetta duga í bili og lýk þessu með myndum af snjó og leiksýningu
Lundgarður ofan/sunnan við Hamar
Steinnes ofan/sunnan við Hamar
Heima við Drekagil. Eins og sjá má talsverður snjór en ekkert til vandræða
Heima við Drekagil
14. nóvember horft í átt að Giljahverfi frá lóð háskólans á Akureyri
Fallegt
Þór fyrir framan aðal innganginn í Verkmenntaskólann
Næstu myndir eru frá leiksýningunni - látum myndirnar tala...
Fróðleikur dagsins: Að vera eða ekki vera það er.....
328 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Flickr myndasíður
- Palli Jóh Hér birti Palli Jóh uppáhaldsmyndirnar sínar.
- Dagga -flikkar
- Runólfur
- Svanný
- Rúnar Haukur
- Merkjamanni
- Þórólfur Sveinsson
- Þórður Halldórsson
- Bói Flickr
- Ívan flikkar
- Sigfríður Guðný
Íþróttaklúbbar.
- Íþróttafélagið Þór
- Manchester City
- Chicago Bulls
- Arsenal fyrir Sölla
- Knattspyrnusamband Íslands
- Körfuknattleikssamband Íslands
- Karfan.is
Áhugaverðar síður.
- Pólitíkin
- Gunnar Ísfirðingur
- Hallandsnes
- Ljósstaðafólkið
- Samfylkingin á Akureyri
- Ungir jafnaðarmenn á Akureyri
- Skúli miðill
- Vísisblogg hjá Gunnari Th. Afbrags góður bloggari.
- Gummi Odds í Ameríku Doktor í smíðum
- Valberg og Steinun blogga
- Palli Jóh á Youtube Myndbönd Palla Jóh
Fjölskyndan bloggar.
Nýjustu færslur
- 4.4.2012 Myndbands- og myndablogg
- 14.3.2012 Smá uppfærsla
- 24.12.2011 Gleðileg jól
- 1.8.2011 Á lífi
- 25.4.2011 Að leika við hvurn sinn fingur
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flottar myndir hjá þér Palli minn.
Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 19.11.2010 kl. 16:37
Flottar myndir hjá þér. Líst vel á hugmyndina með að gefa bláfjöllum allan snjóinn ykkar. Þá nefnilega sleppum við að þurfa að fá hann og jafnvel að moka frá hjá okkur Bestu kveðjur í bæinn
Hrönn Jóhannesdóttir, 24.11.2010 kl. 13:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.