Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2011
25.4.2011 | 12:22
Að leika við hvurn sinn fingur
Það er óhætt að segja að það sé vor í lofti og hugur manns er komin á þvílíkt flug og kannski er hugurinn um þessar mundir líkt og sagt er um kýrnar blessaðar á vorin ,,leikur við hvurn sinn fingur". Já blessað vorið er komið. Þó skiptist á skin og skúrum eins og gengur og gerist. Það eru jú páskar og það getur þýtt eitt og annað, annað en bara hátíðin ein og sér. Páskahret t.d. Hvað sem því líður hret mikið eða lítið þannig er það bara og þýðir ekkert að vera væla og grenja fyrir því.
Páskarnir bera upp á þeim tíma í ár að þeir eru og verða minnst að hluta til fyrir það að marka ákveðin skil milli vetrar og sumars. Nú þegar þeim er u.þ.b. að ljúka marka þeir þau tímamót að upplestur er hafinn hjá skólafólki vegna vorprófa, aðeins vika í að fótboltavertíðin hefjist fyrir alvöru. Það markar jú tímamót hjá mínu ástkæra íþróttafélagi þar sem karlaliðið leikur nú á ný í efstu deild. Sannarlega ánægjulegt. Já sem sagt báðir meistaraflokkar félagsins þ.e. karla og kvenna í efstu deild. Rúsínan í pylsuendanum er jú að stelpurnar leika í Meistaradeild Evrópu í ár afar skemmtilegt.
Við hér norðan heiða fáum okkar fyrstu heimaleiki á Þórsvöllinn 11. maí og má fullvíst telja að þá verði völlurinn orðin iðagrænn og fallegur og tilbúinn í átök sumarsins. Völlurinn er jú upphitaður og hita var hleypt á kerfið mánudaginn 4. apríl. Talandi um tímamót þá bar það til tíðinda að 18. apríl var borin áburður á völlinn og telja menn að svo snemma hafi aldrei verið borið á knattspyrnuvöll á Akureyri.
Eins og vanalega enda ég svo þetta blogg á smá myndasyrpu og læt skýringar fylgja með þar sem þess er þörf.
Svona leit Þórsvöllurinn út 4. apríl þegar hita var hleypt á
Hér má sjá Sigurbörn Viðarsson vallarstarfsmann og fyrrum knattspyrnumann, stór Þórsara og City mann bera á völlinn 18. apríl
Svona lítur völlurinn út í dag 25. apríl og 17 dagar í fyrsta heimaleik
Sjáið þetta....
og þetta....
Þótt mig kannski langi til að prufa þá er ég trúlega orðin og gamall fyrir þess konar.... kannski vegna þessa..........
Átvagl.....
Já blessuðum páskunum fylgir ........... matur í miklum mæli Kalkúnn í boði Döggu og Jóa
Alvöru terta í boði Döggu
Hugsi....
Já sæll.... hægan, hægan
Brugðið á leik..........
Já menn geta lent í átökum við matinn...
Töffari
Prakkarasvipur á Sölla og Margréti Birtu
Ásthildur og Sædís
Fallegt veður á Akureyri í dag 25. apríl
Blessaður þjóðfáninn okkar alltaf jafn fallegur.
Endum þetta á einum málshætti sem poppaði upp hér í Drekagilinu og hljóðar svo
Betra er autt rúm en illa skipað
Bloggar | Breytt 9.10.2017 kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
336 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Flickr myndasíður
- Palli Jóh Hér birti Palli Jóh uppáhaldsmyndirnar sínar.
- Dagga -flikkar
- Runólfur
- Svanný
- Rúnar Haukur
- Merkjamanni
- Þórólfur Sveinsson
- Þórður Halldórsson
- Bói Flickr
- Ívan flikkar
- Sigfríður Guðný
Íþróttaklúbbar.
- Íþróttafélagið Þór
- Manchester City
- Chicago Bulls
- Arsenal fyrir Sölla
- Knattspyrnusamband Íslands
- Körfuknattleikssamband Íslands
- Karfan.is
Áhugaverðar síður.
- Pólitíkin
- Gunnar Ísfirðingur
- Hallandsnes
- Ljósstaðafólkið
- Samfylkingin á Akureyri
- Ungir jafnaðarmenn á Akureyri
- Skúli miðill
- Vísisblogg hjá Gunnari Th. Afbrags góður bloggari.
- Gummi Odds í Ameríku Doktor í smíðum
- Valberg og Steinun blogga
- Palli Jóh á Youtube Myndbönd Palla Jóh
Fjölskyndan bloggar.
Nýjustu færslur
- 4.4.2012 Myndbands- og myndablogg
- 14.3.2012 Smá uppfærsla
- 24.12.2011 Gleðileg jól
- 1.8.2011 Á lífi
- 25.4.2011 Að leika við hvurn sinn fingur
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 190695
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar