Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Eins og að kalla Asna veðhlaupahest

Brá mér í ,,leikhúsið" í gærkvöld til að sjá ,,Ökutíma". Athyglivert stykki á margan hátt. Góður leikur, frumleg uppsetning, boðskapur sem snertir mann. Samt þegar upp er staðið veit ekki hvort ég get mælt með þessu. Eins og fyrr segir leikararnir stóðu fyrir sínu og tónlistarflutningur Lay Low frábær. En sýningarstaðurinn fær falleinkunn. Leiðinlegt hús með afspyrnu slaka aðstöðu fyrir áhorfendur, sækist ekki eftir að fara oftar í þetta blessaða ,,Rými".

Ætla áfram að drekka í mig alls kyns menningu. Í kvöld verður farið á tónleika í Glerárkirkju með Dýfunum, sem ber yfirskriftina ,,Frostrósirnar". Með þeim kemur m.a. fram æskulýðskór Glerárkirkju kórinn sem hún Sædís syngur með. Á von á góðri skemmtun, svo mikið er víst.

Las eftirfarandi á mbl.is ,, Um klukkan 00.30 í nótt var ökumaður stöðvaður á Reykjanesbraut vestan við Grindarvíkurveg fyrir of hraðan akstur. Bifreið ökumannsins mældist á 212 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 90 km/klst. Ökumaðurinn sem var sautján ára og nýlega búinn að fá ökuréttindi var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða". Til bráðabyrgða hefði frekar á að vera til langs tíma. Er samt að velta því fyrir mér hvað hafi vakað fyrir þessum barni með þessum glæfra akstri?  ætli hann hafi verið komin fram yfir settan útivistartíma mömmu og pabba? Bara flýta sér heim strák greyið.

Skíða drottningin Dagný Linda varð að sætta sig við að verma næst neðsta sæti í fyrri æfingaferð í bruni í Aspen í Bandaríkjunum af 64 þátttakendum. Hún mun svo keppa á morgun og vonandi sannast þá máltækið ,,þeir síðustu verða fyrstir" og hún hafi endaskipti á röðuninni þá. Ef ekki þá gengur bara betur næst.

Bloggaði í gær um hinn athyglissjúka ,,Gillzenegger" um hans vafasömu skoðanir. Ferðaðist mikið um bloggheim í gær til að lesa hvað fólk hafði um hann að segja. Sitt sýnist hverjum. Það sem vakti athygli mína var að ansi margir kalla hann ,,Ofurhetju". Þetta finnst mér vera álíka gáfulegt eins og að kalla Asna veðhlaupahest.

Því ber að fagna að loksins ætlar ríkisstjórnin að lagfæra sjálfsögð kjör hjá örykjum og öldruðum, betra seint en aldrei. Það vakti hins vegar athygli mína að Steingrímur J. sagði á þingi að þessar aðgerðir væru bæði ,,allt og litlar og götóttar". Ég er ekki í vafa um að þessir þjóðfélagshópar væru til í að sjá enn meir en til stendur að gera. En mér er spurn ,,hvað vill Steingrímur J. Sigfússon gera? Af hverju fylgir ekki með í hans pakka hvað ríkisstjórnin hefði átt að gera? Af hverju fer Steingrímur ekki að venja sig á að benda á úrbætur um leið og hann fordæmir aðgerðir ríkisstjórnarinnar? getur það verið vegna þess að honum standi alveg á sama? Getur verið að ástæðuna sé að finna í því að innan raða hans flokks sé hreinlega enga stefnu að finna sem inniheldur úrlausnir á þessum vandamálum, annað en ,,eitthvað annað?". 

Málsháttur dagsins: Skemmtinn maður er vagn á veg.


Er hægt að hjálpa svona mönnum?

Ég vil trúa ykkur fyrir því að ég á engan þátt í því að hlutabréfamarkaður Kauphallarinn og fall gengis í FL Group,  sé á einhvern hátt hægt að rekja til mín.  Ef einhverjum skútum er hagga af mínum völdum þyrfti að fara út í hinn stóra heim s.s. Wall street. Þegar ég fer af stað þá vil ég rugga alvöru mörkuðum, ekki neinum duggum.

Las á mbl.is að ,,Félagið Siðmennt hafi sent Karli Sigurbjörnssyni, biskup Íslands, bréf þar sem þess er krafist að hann biðjist afsökunar á ummælum í fjölmiðlum um að Siðmennt séu hatrömm samtök sem vilji að öllu leyti stöðva aðkomu trúarinnar í skólum". Jahá þola forráðamenn þessara samtaka ekki að biskupinn tali opinskátt um þá? Þola þeir ekki að menn segi sannleikann um þá?. Ég held ekki.

Ummæli hins athyglissjúka og veruleikafirrta ,,Gillzenegger þar sem hann segir að hollast væri fyrir femínista að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi, segir meir um þennan sjúka einstakling en annað. Hann er klárlega einn af þeim sem nauðgar og misþyrmir daglega, þ.e.a.s. því sem við köllum málfrelsi. Ætli sé engin leið til að hjálpa mönnum eins og honum?

Skora á ykkur að fara á www.thorsport.is og lesa langt og ítarlegt viðtal sem ég tók við Jón Má Héðinsson skólameistara Menntaskólans á Akureyri. Jón Már lék um árabil með Þór í körfubolta og er talin einn af bestu körfuknattleiksmönnum sem Íslendingar hafa átt.

Í dag hefði hún föður amma mín Ólöf Sólveig Albertsdóttir orðið 104. ára gömul ef hún væri á lífi. Hún fæddist þennan dag árið 1903 á Ytri Varðgjá í Eyjafjarðarsýslu. Amma lést 22. júní árið 1991 á 88. aldurs ári. Á ég margar góðar og hlýjar minningar af þessari mætu konu sem bjó lengi í Gránufélagsgöt 21 í húsi sem gekk undir nafninu ,,Rassmusenhús", sem er forskalað timburhús.

Ætla svo að bregða mér í leikhús í kvöld og sjá ,,Ökutíma" sem Leikfélag Akureyrar er að sýna um þessar mundir og er sýnt í ,,Rýminu" sem eitt sinn hét Dynheimar.

Málsháttur dagsins. Betra er þunnt öl en þunn skál.

Svo er maður að væla...

Hvatningaverðlaun Örykjabandalags Íslands voru veitt í fyrsta sinn í gær. Freyja Haraldsdóttir hlaut þau í flokki einstaklinga. Þegar maður heyrir, les eða hlustar á þessa svo mjög fötluðu ungu konu, setur mann hljóðan. Jákvæðni, bjartsýni og óbilandi trú hennar á lífið fær mann til þess að skammast sín þegar maður vælir yfir sínum eigin raunum, jafnvel þegar maður er bara með kvef. Þrátt fyrir hennar miklu fötlun er óhætt að segja að hún hafi sko höfuðið í lagi.

Ætti að undrast málflutning VG á hinu háa Alþingi þar sem þeir vilja ekki fyrir nokkurn mun samþykkja að ræðutími á Alþingi verði skertur, en svo er ekki. Það er í raun löngu tímabært að koma þessum breytingum í gegn. Þetta gerir þá kröfu til þingmanna að koma undirbúnir til vinnu. Þetta gerir það að verkum að ef menn myndu vinna heimavinnuna sína þá gætu þeir komið sínum skoðunum á framfæri þannig að menn myndu skilja þá. Það myndi spara tíma, fjármuni og án efa losa þjóðina og þingheim undan þeirri hræðilegu raun að þurfa hlusta á mestu kjaftaskana langtímum saman koma í ræðupúlt, tala og tala en segja ekki neitt.

Las í gær á netmiðli að búið væri að setja upp minnisvarða um Jón Ósmann ferjumann. Minnisvarðinn var settur upp við Vesturós Héraðsvatna í Skagafirði. Skemmtileg tilviljun því um svipað leyti og ég las þessa frétt börðu að dyrum hjá okkur heiðurshjónin Marta og Jón Ósmann frá Sauðárkróki. Þau brugðu sér í bæjarferð og gömlum og góðum íslenskum sið þá komu þau í húsvitjun. Klikkar aldrei þegar þau koma í kaffi.

Í dag á Anna  ,,stóra" systir afmæli. Hún leit dagsins ljós um miðja síðustu öld. Samt er hún enn á besta aldri. Miðað við aldur og fyrri störf þá virðist hún ekki vera deginum eldri í dag en hún var í gær. Þegar ég horfi til þess að hún er fjórum árum eldri en ég þá þarf ég ekkert að óttast ef ellikerlingin mun fara með mig sömu mjúku höndum og hún gerir við systir mína. Ef þú lest þetta Anna þá til hamingju með daginn.

Málsháttur dagsins: Svipul er sjávargjöf.

Þetta er í góðu lagi enda hefur þetta fólk nóg

Nei auðvitað er engin ástæða til þess að Alþingi grípi til neinna ráðstafna varðandi skerðingu lífeyrissjóðanna. Enda gerir TR svo vel við öryrkja að engin ástæða er til að hafa áhyggjur af gangi mála. Öryrkjar verða auðvitað að taka á sig skerðingu sérstakalega nú þegar svo hart er í ári. Komin tími á að þessi þjóðfélagshópur fari að sætta sig við það sem þeir hafa....

Svei mér þá ef ég er ekki farin að skammast mín fyrir að vera öryrki, þetta er allt mér að kenna, sorry.

Málsháttur dagsins: Fáir eru hófsamir í meðlæti sem mótlæti.
mbl.is Ekki frekari inngrip í starfsemi lífeyrissjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð ábending á aðventunni.

Nú er rétti tíminn til að sýna stuðning í verki. 

Sýnum samstöðu og styðjum við hana og dóttur hennar, Kolbrúnu Ragnheiði, svo þær geti notið hátíðanna, lausar við fjárhagsáhyggjur.  Þúsundkall eða Fimmþúsundkall..... allt hjálpar.

Bankareikningur

0140-05- 015735.     Kt.101268-4039

Ég skora á aðra bloggara að taka þátt og birta samskonar færslu á sinni síðu. 

Meira síðar.


Afi er alltof feitur.... það sagði jólasveinninn.

JólasveinnDóttur dóttir mín hringdi í mig í dag. Hún var dálítið óðmála. ,,Afi veistu hérna afi veistu ég hérna fór í Nettó í dag og veistu hvað?" áður en mér tókst að segja eitthvað hélt hún áfram og sagði ,,Afi veistu ég hitti þrjá jólasveina og veistu hvað? veistu hvað einn jólasveinn sagði við mig ha, veist hvað?"....  Nei Margrét mín ég veit ekki hvað hann sagði. Afi jólasveinninn gaf mér appelsínu og epli og veistu hvað hann sagði  ekki gefa afa þínum þetta hann er allt of feitur! Ja hérna og heyr og endemi. Hvað er eiginlega jólasveinninn að meina? ég veit ekki hvort þetta sé sanngjarnt. Vissulega er föður afi barnsins kannski með nokkur aukakíló, en come on... oft má satt kjurt liggja. En þetta er eitthvað sem ég þarf samt að ræða við ónefndan ,,vin" minn við hentugt tækifæri, guð hjálpi honum þá.

Fór svo niður á Glerártorg til þess að vita hvort ég hitti þessa óþekku jólasveina. Þeir voru á bak og burt, vissu upp á sig sökina. Mikill mannfjöldi var á Glerártorgi. Við þær aðstæður sækist manni hægt að labba í gegnum mannþröngina. Hittum þar Fríðu frænku konu minnar ásamt Hadda manni hennar og Sindra syni þeirra. Fórum og fengum okkur sæti á Kaffitorg og spjölluðum enda of sjaldan sem við hittumst, enda býr Fríða í höfuðborginni þar sem hún starfar sem arkitekt við að hanna mannvirki sem prýða borgina vítt og breytt.

Skaust síðan í Landsbankann til þess að hlusta á æskulýðskór Glerárkirkju þar sem hann skemmti með söng. Frábær skemmtun og mikið gaman. Verða að játa að ég var þó með hugann að hluta til annars staðar. Mínir menn í körfuboltaliði Þórs léku gegn úrvalsdeildarliði Fjölnis og fór leikurinn fram á heimavelli Fjölnis í íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi. Skemmst er frá því að segja að mínir menn fóru með 84-88 sigur af hólmi. Frábær sigur og liðið nú um miðja deildina með 8 stig.

Í ensku úrvalsdeildinni máttu mínir menn í Manchester City sætta sig við 1-1 jafntefli gegn einu af neðstu liðum deildarinnar Wigan. Leikurinn var háður á heimavelli Wigan. Liðið er nú í fjórða sæti deildarinnar með 30 stig.

Mun svo klárlega fara vel um mig í leðrinu í kvöld fyrir framan imbann.

Fróðleikur dagsins: Svo mikil spenna ríkti vegna leiks El Salvador og Honduras á HM 1970 að þjóðirnar áttu í stríði í þrjá daga í kjölfar hans.

« Fyrri síða

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

336 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband