Leita í fréttum mbl.is

Grímseyjarferjan í brotajárn við Krossanes

Gargandi snilld! Eftir á allt sem undan er gengið, spyr ég mig ,,hvernig í ósköpunum datt mönnum í hug að leggja í þessa glæfra siglingu og það yfir hávetur, á þessum riðkláfi?". Held að það væri ráð að sigla skipinu ekki fetinu lengra en að bryggju við Krossanes þar sem vanir menn eru að vinnu við að brytja niður skip í brotajárn, svo er Hringrás með bækistöðvar rétt ofan við bryggjuna, mjög hentugt vægast sagt. Þar með væri þetta vandræða mál allt úr sögunni.

Málsháttur dagsins: Þar gætir sauður sauða sem enginn hirðir er.
mbl.is Sæfara miðar hægt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Vonandi rætist máltækið " Fall er fararheill" Og það fari að sjást fyrir endann á þessu leiðinda máli.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 14.1.2008 kl. 17:28

2 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ekki dytti mér í hug að ráða mig þarna um borð sem matsvein.

Árni Gunnarsson, 14.1.2008 kl. 18:02

3 identicon

Nú ætla ég að taka stórt upp í mig: Þessi helvízkur ræfill gengur ekki einu sinni á báðum vélum! Og ein helsta röksemdin þegar verið var að klóra yfir skítinn sem huldi þessi kaup var sú að skipið væri með svo góðar og lítið notaðar vélar!

Ég spyr enn og aftur: Hver, já hver innan ríkisbatterísins græddi umboðslaun á þessum handónýta ræfli? Ætla menn virkilega að láta Vegagerðina og Ríkiskaup komast upp með þetta afrek óhegnt?

Fréttir Stöðvar tvö hljóma hér fyrir aftan mig meðan ég skrifa þetta. Þeir segja hjá Vegagerðinni að "ofmælt" sé að tala um vélarbilun! Hverskonar kjaftæði er þetta? Ef ekki er hægt að keyra vél á einhverjum afköstum vegna bilunar þá er það vegna bilunar og einskis annars en bilunar.

Það var einnig tekið fram í fréttinni að skipið hefði haldist þokkalega á réttum kili. Semsagt að stöðugleikinn hefði verið góður.

Mikið er gott að menn skuli hafa fundið það út á siglingunni til Akureyrar að líkur væru til þess að það héldist á réttum kili um sinn. Voru menn semsé í einhverjum vafa um það??

Á ég að segja ykkur svolítið? Þegar Fagranesið sem nú er Moby Dick, var selt að vestan, þá var það til að rýma fyrir stærra og nýrra skipi. Ríkið styrkti reksturinn en hlutafélagið Djúpbáturinn hf. átti skipið og rak. Stjórnendurnir vildu færa reksturinn til nútímans, kaupa skip sem hægt væri að aka um borð í, í stað þess að hífa bílana um borð, þá fimm sem gamla skipið tók. Þeir fengu styrk til að byggja ferjubryggjur eins og í Stykkishólmi og á Akranesi (þegar Akraborgin var). Síðan var leitað að heppilegu skipi í Noregi, þar sem urmull er til af ferjum. Þeir fundu ágætt skip, fóru út með aurana og keyptu það. Heimkomið þurfti skipið smávægilegar lagfæringar en var mjög fljótlega komið í fullan rekstur.

Rúsínan í pylsuendanum? Jú, þeir borguðu tuttuguog tvær milljónir fyrir skipið!!!!

Tuttuguog tvær milljónir og einhverja tíuþúsundkalla í lagfæringarnar.

Vitiði hvað Vegagerðin gerði?

Jú, þeir ákváðu að framtíðarstefna stofnunarinnar ætti að vera sú að leggja skyldi vegi allstaðar þar sem það væri á annað borð hægt. Því var ákveðið að byggja upp Djúpveginn. Þegar ákvörðunin hafði verið tekin, kláruðu menn kaffið úr bollunum, tókust í hendur og hættu að styrkja Djúpbátinn! Síðan var farið að huga að endurbyggingu vegarins. Styrklaust gekk reksturinn ekki upp og að síðustu var Fagranesið, sem leyst hafði Baldur af á stundum og var talið taka honum fram að flestu leyti, selt til Bandaríkjanna. Þar liggur það við kant, og hefur verið innréttað sem íbúð.

http://bb.is/?PageID=26&NewsID=109985

Skoðið hlekkinn.

Hún stendur enn............

Gunnar Th. (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 18:58

4 identicon

Vegna einhverra mistaka (sem ég vil þó ekki gera Vegagerðina ábyrga fyrir) er skekkja í síðustu málsgreininni. Rétt er hún svona:

Jú, þeir ákváðu að framtíðarstefna stofnunarinnar ætti að vera sú að leggja skyldi vegi allstaðar þar sem það væri á annað borð hægt. Því var ákveðið að byggja upp Djúpveginn. Þegar ákvörðunin hafði verið tekin, kláruðu menn kaffið úr bollunum, tókust í hendur og hættu að styrkja Djúpbátinn! Síðan var farið að huga að endurbyggingu vegarins. Hún stendur enn.........

Styrklaust gekk reksturinn ekki upp og að síðustu var Fagranesið, sem leyst hafði Baldur af á stundum og var talið taka honum fram að flestu leyti, selt til Bandaríkjanna. Þar liggur það við kant, og hefur verið innréttað sem íbúð.

Gunnar Th. (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 19:06

5 Smámynd: Páll Jóhannesson

Þakka þér kærlega fyrir þína mögnuðu athugasemd. Það er eins og fyrri daginn, fróðleikur og aftur fróðleikur.

Páll Jóhannesson, 14.1.2008 kl. 20:14

6 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Já þú náttúrulega ert búinn að vera með annan fótinn fastann við Krossanes svæðið undanfarið og taka myndir ásamt því að spjalla við gömlu peyjanna sem ólust næstum upp á svæðinu, enn eru nú engu að síður hálf áttavilltir blessaðir þegar þeir líta upp úr körunum.

Ég held að það sé alveg sama hvað kemur fyrir þetta blessaða fley það sem eftir er af ævi þess, alltaf verður sagt að þetta hafi komið ónýtt að utan.

Þó svo fleygið fái á sig brotsjó og gluggi brotni úr brúnni, verður því kennt um að glugginn hafi aldrei verið límdur nægilega vel í falsið.

Ef svo óheppilega vildi til að skipið lendi í sjávarháska vegna kannski bilunar í stýri, vél eða einhver annars smálegs og við verðum fyrir mannskaða eða miklu tjóni á farmi verður allt gjörsamlega vitlaust og því tel ég að réttast hefði verið að koma skipinu fyrir erlendis aftur.

Enn þetta er samt að mínu viti ein fallegasta ferja sem ég hef séð.

S. Lúther Gestsson, 14.1.2008 kl. 20:17

7 Smámynd: Páll Jóhannesson

Auðvitað verður aldrei sagt annað en að skipið hafi komið ónýtt að utan, enda sannleikanum samkvæmt.

Og hvort sem skipið er fallegt eður ei skiptir engu máli. Það sem upp úr stendur er klúður frá upphafi til enda við kaupin á þessum riðkláfi og bruðl og aftur bruðl með skattfé okkar.

En ég vona svo sannarlega og segi það af heilum hug að vonandi mun þetta skip reynast vel þegar það verður komið í rekstur enda eiga þeir sem það þurfa nota það svo sannarlega skilið, og það muni standa af sér öll mannkaðaveður.

Áttaviltur, getur vel verið að einhverjir séu það en ég fer reglulega til Jónasar Þorsteinssonar og læt stilla mig, svo ég þurfi ekki að hlaupa blindur kettlingur í hringi, líkt og þeir sem lögðu á ráðin og keyptu hið umrædda skip.

Páll Jóhannesson, 14.1.2008 kl. 20:58

8 identicon

Ég get alveg tekið undir það að Grímseyjarferjan er síður en svo ljótt skip, en skip fara svo sem stutt á fegurðinni einni.

Páll á á hættu að verða áttavilltur á Krossanessvæðinu og skyldi engan undra. Það er stundum eins og einhvers staðar djúpt inni í enbættismannabákninu sé lítil en valdamikil nefnd sem vinni eftir boðorði sem gæti litið svona út: "Strandlengju Íslands skal breyta að svo miklu leyti sem mögulegt er og skal enginn staður undanskilinn. Í stað náttúrlegra fjara skulu koma grjótgarðar, þar sem tjarnir eru við strendur skulu þær uppfylltar og sandstrendur skulu víkja fyrir landfyllingum"

Síðan kemur klausa sem er svo smátt letruð að einungis þeir sem hafa haft blátt eða grænt flokksskírteini um langa hríð og eru innmúraðir og innvígðir, geta lesið. Hún gæti litið svona út. "Þess skal vandlega gætt að aðeins Ístak fái að hagnast á breytingu strandlengjunnar"

Að síðustu tek ég undir þau orð að vonandi þjónar þessi fleyta Grímseyingum eins vel og auðið er á komandi árum, þrátt fyrir þær hörmungar sem yfir hana hafa gengið undanfarið. Skipið var upphaflega byggt til að vinna, ekki sökkva, og þjónaði því hlutverki vel að sögn í hvað, tólf ár? Það var keyrt árum saman án verulegs viðhalds og Þegar fyrri eigendur töldu ekki svara kostnaði að klassaþað upp seldu þeir það til Íslands - enda kaupa Íslendingar allt!

Gunnar Th. (IP-tala skráð) 14.1.2008 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

201 dagur til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband