6.10.2007 | 13:49
Spánverjinn vælir og skælir.
Maður er búinn að fá upp í kok af væli og skæli í þessum manni. Þessi frétt sem endar á þessum orðum vælukjóans Alonso ,, Mér gremst alltaf þegar ég næ ekki góðri stöðu og næ ekki eins góðum árangri og ég ætti að geta. Það er eðlilegt. Hann þarf að átta sig á því að nú er komin í formúluna annar og betri ökumaður og þess vegna er hann ekki fremstur.
Málsháttur dagsins: Allir yfirburðir eru öfund undirorpnir.Alonso segir titlinum ráðstafað utan brautar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
336 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Flickr myndasíður
- Palli Jóh Hér birti Palli Jóh uppáhaldsmyndirnar sínar.
- Dagga -flikkar
- Runólfur
- Svanný
- Rúnar Haukur
- Merkjamanni
- Þórólfur Sveinsson
- Þórður Halldórsson
- Bói Flickr
- Ívan flikkar
- Sigfríður Guðný
Íþróttaklúbbar.
- Íþróttafélagið Þór
- Manchester City
- Chicago Bulls
- Arsenal fyrir Sölla
- Knattspyrnusamband Íslands
- Körfuknattleikssamband Íslands
- Karfan.is
Áhugaverðar síður.
- Pólitíkin
- Gunnar Ísfirðingur
- Hallandsnes
- Ljósstaðafólkið
- Samfylkingin á Akureyri
- Ungir jafnaðarmenn á Akureyri
- Skúli miðill
- Vísisblogg hjá Gunnari Th. Afbrags góður bloggari.
- Gummi Odds í Ameríku Doktor í smíðum
- Valberg og Steinun blogga
- Palli Jóh á Youtube Myndbönd Palla Jóh
Fjölskyndan bloggar.
Nýjustu færslur
- 4.4.2012 Myndbands- og myndablogg
- 14.3.2012 Smá uppfærsla
- 24.12.2011 Gleðileg jól
- 1.8.2011 Á lífi
- 25.4.2011 Að leika við hvurn sinn fingur
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 4
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 31
- Frá upphafi: 190698
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Mikið hvað ég skil Alonso,ég hef alltaf verið ferrari maður mikill eða allar götur síðan 1993 og fylgst með formúlunni nánast hverri einustu keppni og þetta með Hamilton hefur ekkert með hæfileika að gera Ron Dennis ætlaði sér alltaf að gera Hamilton að heimsmeistara þeas ef hann fengi góðann bíl sem og þeir fengu en að vísu með hjálp Ferrari,svo finnst mér Hamilton vera einhver alleiðinlegasti persónuleiki sem sést hefur en þetta er bara mín skoðun
lifið heil Guðmundur Örn
Guðmundur Örn (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 14:42
Ég er sjálfur Ferrari aðdáandi, en Hamilton hefur sýntj og sannað í sumar að hann er bara fremri en Alonso, ekki flóknara en það
Páll Jóhannesson, 6.10.2007 kl. 15:58
Alveg gæti ég ekki verið meira sammála þér Páll.
Það er algerlega fáránlegt af heimsmeistaranum (fráfarandi) að halda því fram að titillinn ráðist í þessu eina móti, bara barnalegt.
Alonso hefði betur reynt að drullast til að aka betur í öllum fyrri mótum en að fara skæla núna þegar að tveggja ára heimsmeistaratitli hans er að ljúka.
Svo finnst mér hann varla vera í stöðu til að gagnrýna "drengskap" hjá nokkrum manni þegar hann sjálfur beitir öllum brögðum til að sigra, ætli Hamilton sé bara ekki betri nemandi en Alonso grunaði : )
Guðmundur, að halda því fram að Ron Dennis geti bara gert einhvern að heimsmeistara að því gefnu að bíllinn sé góður er alveg sprenghlægilegt og ég varla þrúi því að þú sért mikið að pæla í F1 ef að þú getur haldið þessu fram.
Og varðandi persónuleika Hamiltons þá skil ég ekki hvað þú getur fundið að honum, nema að hann er brosmildur hæfileikaríkur ungur maður og gæti tekið met "skósmiðsins" og bætt þau.
Kannski er það málið, hér gæti verið kominn arftaki mesta F1 ökumanns fyrri tíma.
Já, ég er McLaren maður.
Hafliði (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 16:28
Ef það er eitthvað sem fer í taugarnar á mér þá eru það íþróttamenn sem væla og skæla yfir ótrúlegustu hlutum og með samsæriskenningar hægri vinstri. Ég vil sjá menn með alvöru keppniskap láta verkin tala í keppni. Tapi menn þá er bara hysja upp um sig brækurnar, spýta í lófana og gera betur. En umfram allt láta þó ekki skapið hlaupa með sig í gönur og taka ekki fljótfæris- og jafnvel barnalegar ákvarðanir líkt og Dída markvörður AC-Milan gerði í vikunni þegar hann gerði í buxurnar
Páll Jóhannesson, 6.10.2007 kl. 17:16
Veistu Páll, þegar einhver hér ofar skrifar að staða Hamiltons sé ekkert tengd hæfileikum, þá er eitthvað mikið að. Hamilton er ekki bara ofar en Alonso, hann er nefnilega líka ofar en Raikkonen, Massa og aðrir þeir sem hafa sannað sig undanfarið. Og Ron Dennis getur ekki handraðað mönnum öðrum en sínum eigin. Svo einfalt er það.
Þetta endalausa væl hans Alonso, hnefasteytingar úr klefanum og tuð og röfl í viðtölum hefur gert það að verkum að aðdáendum hans fer ört fækkandi. Það er mér algerlega að meinalausu þótt hann snúi sér að leigubílaakstri að tímabilinu loknu. Hann hefur ekkert - nákvæmlega ekkert - lagt til íþróttarinnar. Ekki nema röfl, tuð og kvartanir teljist framlag. Sé svo hefur hann vissulega auðgað keppnina ríkulega. Mig grunar samt að færri en fleiri myndu gráta það þó hann hreinlega hætti að loknu þessu tímabili.
Veit annars nokkur hvað varð um Barrichello? Er hann kominn í mark eftir tímatökuna eða er hann enn inni á brautinni að leita að leið út? Hvar er maðurinn eiginlega? Sigurvegari margra móta hér fyrir nokkrum árum er nú iðulega síðastur manna. Maðurinn sem taldi það helsta kostinn við að fara til Honda að nú gæti hann loks farið að veita Schumacher raunverulega keppni! Jafnvel Yamamoto má hafa sig allan við að ná síðasta sætinu!
Svei mér þá!
Gunnar Th. (IP-tala skráð) 6.10.2007 kl. 23:50
Páll minn ég er sko ekkert inni í þessu og hef víst ekki nægjanlega áhuga, annars er hægt að þjálfa það eins og annað, kannski kemur að því. Þess vegna læt ég körlum þetta eftir í þetta skiptið.
Edda Agnarsdóttir, 7.10.2007 kl. 13:03
Mikið er ég sammála þér Páll Bestu þakkir fyrir að þiggja vinaboð mitt.
Kær kveðja, Guðni.is
gudni.is, 7.10.2007 kl. 15:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.