9.2.2011 | 21:44
Innlifun og enga öfga takk
Í síðustu bloggfærslu var mér tíðrætt um öfga, aðallega tengdu veðurfari. Þessir öfgar halda áfram og það er bara allt í lagi. Lífið rúllar áfram hvað sem veðrinu líður, sem betur fer. Síðasta helgi var afar annasöm, Goðamót Þórs þar sem stelpur í 4. flokki voru í aðalhlutverkinu. Allt frá miðjum föstudegi og fram á sunnudagskvöld vorum við félagarnir (Rúnar Haukur) á staðnum og tókum mörg hundruð myndir og sem settar voru á veraldarvefinn. Mikið gaman. Á þessu móti var brotið blað í sögu knattspyrnunnar á Akureyri. Að frumkvæði Bojönu Besic þjálfara sem þjálfar 5. flokk kvenna bæði hjá Þór og KA tefldu þessi lið fram sameiginlegu liði Þór/KA og tóku þátt í þessu móti. Liðið spilaði sem sagt upp fyrir sig um einn flokk. Útkoman frábær. Elsta barnabarnið hún Margrét Birta æfir með 5. flokki Þórs var með í þessu ævintýri og var sérlega gaman að fylgjast með henni og félögum hennar.
Og þar sem ég er farin að blogga um barnabörnin þá er um að gera halda því áfram. Þessar elskur koma alla virka daga heim til ömmu og afa, þar eru engir öfgar, eða? Þegar börn eru annars vegar getur verið gaman að leika sér með myndavélina og festa skemmtileg augablik, annað hvort óvænt eða jafnvel uppstillt. Sumum þykir gaman að stilla sér upp fyrir myndatöku og njóta augnabliksins. Þetta á t.d. við Elínu Ölmu. Hún tók sér til að stillti sér upp fyrir afa og þemað var ,,Þreyta, þreytt" útkoman var þessi
Þegar börn eru að neyta matar verða sum augnablikin eftirminnileg. Sjáið þetta Jón Páll í eigin heimi við að borða hakk og spaghetti, magnað ekki satt?
Og þegar yngsta barnabarnið borðar er oftar en ekki vissara að láta tvo um að koma matnum á sinn stað, slík er óþolinmæðin.
Og af því að ég hef svo fjári lítið að segja um þessar mundir þá læt ég hér staðar numið. En eins og vanalega fylgir með smá fróðleikur í lokin eins og vanalega.
Fróðleikur dagsins: Vatnsmagn Amazon fljótsins er meira en samanlagt vatnsmagn næstu átta stærstu fljóta heims
336 dagar til jóla
Bloggvinir
Tenglar
Flickr myndasíður
- Palli Jóh Hér birti Palli Jóh uppáhaldsmyndirnar sínar.
- Dagga -flikkar
- Runólfur
- Svanný
- Rúnar Haukur
- Merkjamanni
- Þórólfur Sveinsson
- Þórður Halldórsson
- Bói Flickr
- Ívan flikkar
- Sigfríður Guðný
Íþróttaklúbbar.
- Íþróttafélagið Þór
- Manchester City
- Chicago Bulls
- Arsenal fyrir Sölla
- Knattspyrnusamband Íslands
- Körfuknattleikssamband Íslands
- Karfan.is
Áhugaverðar síður.
- Pólitíkin
- Gunnar Ísfirðingur
- Hallandsnes
- Ljósstaðafólkið
- Samfylkingin á Akureyri
- Ungir jafnaðarmenn á Akureyri
- Skúli miðill
- Vísisblogg hjá Gunnari Th. Afbrags góður bloggari.
- Gummi Odds í Ameríku Doktor í smíðum
- Valberg og Steinun blogga
- Palli Jóh á Youtube Myndbönd Palla Jóh
Fjölskyndan bloggar.
Nýjustu færslur
- 4.4.2012 Myndbands- og myndablogg
- 14.3.2012 Smá uppfærsla
- 24.12.2011 Gleðileg jól
- 1.8.2011 Á lífi
- 25.4.2011 Að leika við hvurn sinn fingur
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.