Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2009

Vorverk

Vorið er komið og grundirnar ........ og allt það. Með hækkandi sól þarf að taka fram ýmis verkfæri og láta hendur standa fram úr ermum. Latur maður sagði ,, þess vegna er ég aldrei í stutterma bol¨. Ég er heppinn ég fékk hjálp.

Vorverk.jpg

En áður en byrjað er þá er víst betra að leggja línurnar hvernig á að gera. ,,Ungur nemur gamall temur". Já þetta byrjaði ágætlega ............... og 

Vorverk.jpg

 Sólpallurinn fékk þvott, gluggarnir einnig afi smá í tærnar enda illa klæddur. Jón Páll snéri máltækinu við ,,ungur nemur....." því hann mætti í pollagalla og kom inn í kvikk hjá ömmu á eftir þurr í lappir og alles. 

Í kvöld ætlum við feðgar að fara í Bogann og horfa á Stelpurnar okkar í Þór/KA taka á móti Breiðabliki í undanúrslitum A-deildar Lengjubikarsins. 

stelpur2008_838526.jpg

Gaman verður að sjá hvernig þessi viðureign fer. Þessi lið mættust fyrr í vetur en þá unnu Blikar. Marga lykilmenn vantaði þá í okkar lið. Nú vantar lykilmenn í bæði lið. Það mun án efa hafa jákvæð áhrif á okkar lið að Rakel Hönnudóttir er komin heim og leikur með.

ljosmyndari.jpg

Hvað um það. Ég verð með viðhaldið með mér og mun án efa smella villt og galið. Læt hér að lokum fylgja með mynd sem félagi minn tók af mér í aksjón. Gaman af þessu. En endilega drífið ykkur í Bogann og horfið á skemmtilega íþrótt. Leikurinn hefst kl. 18:00

Fróðleikur dagsins: Fullnæging svína varir í u.þ.b. 30 mínútur.


Eins og blóm í eggi

Vegna anna hefur farið lítið fyrir bloggi síðustu daga og verður svo enn um sinn. Er á kafi í vinnu sem líkur um næstu helgi þ.e. daginn eftir kosningar. Hef lofað því að skrifa ekki um pólitík á blogginu og er það ástæða þess að lítill tími gefst.

Hvað um það. Brá mér í Skagafjörðinn í dag. Fermingarveisla í ætt konu minnar. Hafði að sjálfsögðu með mér viðhaldið. Rétt neðan við Silfrastaði sá ég álftir sem ég  hugði mynda. Var rétt að ljúka við að skipta um linsu og stilla vélina þegar parið flaug á braut. 

Á flugi

Náði aðeins í skottið, stélið á þeim á hröðum flótta, ekki góð gæði en samt ég bara næ þeim síðar. 

Veislan fín og fermingarbarnið geislaði eins og blóm í eggi eða þannig. En dagurinn byrjaði þó hjá stráknum að staðfesta þetta allt í kirkjunni. Nú er hann Dagur Bjarki komin í tölu fullorðina manna. Hef reyndar aldrei skilið þetta ,,komin í tölu fullorðinna manna.....".

Í tölu fullorðinna manna

Hér er Dagur ásamt mömmu sinni, stóra bróðir og stóru systir. Flott fjölskylda. 

Þurfti að bregða mér fram í fjörð um daginn nánar tiltekið að Grund í Eyjafirði. Notaði tímann í leiðinni til að mynda hina fallegu kirkju. Þessi kirkja er á efa ein af fallegustu kirkjum landsins. 

Grundakirkja

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og séð framan frá

Grundakirkja

Já það er sama hvar á þessa byggingu er litið hún er falleg.

Á leiðinni aftur í bæinn smellti ég einni mynd af hesti einum sem smælaði framan í heiminn. Hann hefur greinilega áttað sig á því að ef hann smælar framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í hann. Það gerði ég. Já hvað gat'ég annað gert þegar hann rak upp þennan líka hrossahlátur með sínu breiða brosi...?

Ef þú smælar framan í heimin þá.....

Já það styttist í alvöru blogg. Þið bara haldið áfram að kíkja og hver veit nema ein og ein stutt færsla detti inn svona af og til. En eftir rúma viku þá dett ég örugglega í grírinn. 

Málsháttur dagsins: Enginn veit á hverri stundu gæfan gefst

 

 


Gleðilega páska

Málsháttur dagsins.............. í restina eins og venjulega

Páskadagur = kirkja kl. 13:00 þar sem m.a. dóttirin er að syngja með Æskulýðskórnum. Kaffi hjá Döggu og Jóa í dag og svo sameiginleg kvöldmáltíð í Lönguhlíðinni þar sem m.a. lang- afi og amma barnabarna minna verða einnig í mat. 

Ágætt að skipta þessu á milli manna. Fyrir ári síðan kom allur mannskapurinn saman hér í Drekagilinu og þá var þessi mynd tekin.

Borðhald

Og svo stilltu barnabörnin sér upp í myndatökur fyrir afa með páskaegg

Beðið

Að öðru leiti mun þessi dagur líða eins og hver annar páskadagur, þið skiljið manni hættir til að vera tregur til að breyta hefðum  á þessum dögum. Á morgun tekur svo við vinna. Komin í tímabundna vinnu sem mun taka allan minn tíma fram yfir kosningar.

Að svo mæltu óska ég ykkur öllum gleðilegra páska með von um að þið njótið hans.

Málsháttur dagsins úr páskaeggi Palla: Það er erfitt að biðjast afsökunar, en það borgar sig


Er nauðsynlegt að skjóta þá?

Það er ekki svo langt síðan ég bloggaði um göngutúr minn niður við Ægissíðuna þar sem ég skoðaði menjar um þá tíð þegar menn gerðu út á grásleppu við Ægissíðuna. Vinkona mín tjáði mér um daginn að það hafi farið um sig hrollur er hún las bloggið. Hún bjó víst um skeið við Ægissíðuna og þótti það kuldalegur staður, sem og hún gæti ekki fyrir nokkrun mun endurnýjað þau kynni hvað sem á gengi. Hvað um það - ég læt þá hér staðar numið um þessa síðu sem kennd er við Ægi.

En ekki svo langt frá eða á nesinu að vestan þar sem ég staðsetti einhversstaðar á Seltjarnarnesinu stendur einn skúr sem notaður er við fiskverkun. Einhvern tíman hefur hangið þar hákarl, hver veit?

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En í þessari sömu ferð notaði ég tímann til að skoða mig um hér og hvar, m.a niður við Reykjavíkurhöfn, Granda. Í slippnum er verið að skvera til hvalveiðibát og togara. Þeirra bíða verkefni þótt ólík séu. Annar (hinn minni) ku veiða með skutli stóra bráð en hinn stærri mun veiða minni fiska, að sumra mati smáfiska. 

Gert klár

Nú svo eru aðrir sem bíða átekta tilbúnir og aðrir sem eiga nokkuð langt í að vera klárir ef marka má af útliti þeirra. 

hvalbatar.jpg

Maður spyr sig enn og aftur eins og Bubbi forðum ,,Er nauðsýnlegt að skjóta þá?" Ég veit ekki. Ég sveiflast í skoðunum. Stundum finnst mér það þjóðráð og í aðra röndina finnst mér það misráðið. Þannig er það bara. 

Hvað um það. Svo eru aðrir sem láta sér í léttu rúmi liggja hvort skipin veiða stóra eða smá fiska. Halla sér upp að næsta vita meðan þeir bíða spakir meðan eftir því hvort það bíti á hjá þeim. Toby eða hvað er notað gildir einu. Maðurinn er slakur og virðist ekki hafa miklar áhyggjur af lífinu. Tvær veiðistangir, lítill afli, skíta kuldi en útiveran greinilega að virka þarna hjá kappanum. 

Að veiða

Nú ég hafði einnig ekið um draugahverfi borgarinnar og til að sjá þær hörmungar
sem við blasa. Hús í hundraðatali hálfbyggð standa auð. Byggingakranar stopp og byrja brátt að ryðga fastir. Maður biður og vonar að ástandið fari að batna hið fyrsta. Ekki vil ég að borgin okkar verði að stærsta draugabæli landsins þrátt fyrir að þar búi mestur hluti þjóðarinnar.

 Örlögin ráðin?

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nú svo eru önnur hús sem mega muna sinn fífil fegurri og bíða örlaga sinna. Hvort örlög þessa  húss sem stendur inná milli reisulegra iðnaðarhús niður á Granda sé að verða gert upp eða rifið skal ósagt látið. En ljóst er að hvor örlögin sem það verða þá er ljóst að í dag eru engir peningar til hjá eigandanum að klára hvort sem verður ofan á. Læt ég svo bloggi mínu úr borgarferð minni lokið að sinni. Í næsta bloggi verður örugglega fjallað um eitthvað héðan úr norðrinu.

Tannálfar

Að lokum er kannski bara vel við hæfi að birta eina mynd af systrunum (afa stelpunum) skælbrosandi enda eru þær að ganga í gegnum mikið breytingaskeið.Barnatennurnar detta og mikill spenningur að sjá nýju fullorðins tennurnar - smæl Grin

Málsháttur dagsins: Prestlaus sveit er sem saltlaus matur


Góð skemmtun

Í kvöld brá ég mér í Bogann og horfði á leik Þórs og Breiðabliks í A- deild Lengjubikarsins í knattspyrnu karla. Leikurinn var hin ágætasta skemmtun og úrslitin þokkaleg. Vissulega hefði maður vilja sjá sigur hjá sínum mönnum en það verður ekki á allt kosið. Jafntefli var niðurstaðan 1-1 sennilega sanngjörn úrslit þegar upp er staðið. Gat ekki verið með myndavélina á lofti í kvöld þar sem ég var í hlutverki blaðamanns. Umfjöllun um leikinn er hægt að sjá á heimasíðu Þórs.

Í gær fórum við ,,gamla" settið á árshátíð hjá Glerárskóla og þar var boðið upp á margvíslega skemmtun. Krakkarnir klikkuðu ekki. Margrét Birta elsta barnabarnið okkar var þar í einu skemmti atriði þar sem hennar bekkur sýndi dans úr Grease. Maður var ferlega stoltur og rifjaðist upp fyrir manni þegar maður fór á slíkar skemmtanir þegar börnin manns voru í grunnskóla.

Margrét Birta

Hér er búið að greiða skvísunni og allt klárt.

Dans

Og þegar á sviðið kom klikkaði ekki neitt

Í borgarferðinni um daginn var myndavélin á lofti hér og hvar, nema hvað? Eitt af því sem vakti athygli mína var listaverk eitt sem er til sýnis í Smáralindinni. Þar er til sýnis líkan af Eiffel turninum sem smíðað er af Jóni Kristni Guðjónssyni. Líkanið er í hlutföllunum 1/60 og er 5,5 metra hátt og smíðað úr 300.000 eldspýtum. Listamaðurinn var í 5 ár að smíða gripinn. Já sjón er sögu ríkari og ég hvet alla sem hafa tök á að bregða sér í Smáralindina og skoða listaverkið. 

Eifell

Fyrir þá sem vilja sjá fleiri myndir í fullum gæðum þá endilega kíkið á flickr síðuna mína slóðin er www.flickr.com/pallijo 

Fermingarveisla á morgun hjá vinafólki okkar. Þar sem gestgjafarnir vilja ekki horfa á veisluna í gegnum myndavélalinsu tók ég að mér að vera með myndavélina á lofti og ég lofa því að þar verður smellt hægri vinstri og engin sleppur, nema kannski ljósmyndarinn sjálfur. 

Málsháttur dagsins:  Þangað vill hver hníga sem hann er hallur.


Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

242 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband