Leita í fréttum mbl.is

Flensa hvað

Það er óhætt að segja að þetta skiptist á skin og skúrir. Ýmist rignir dögum saman eða glampandi sól og blíða með leiðindum fyrir suma meðan aðrir gleðjast. Það sem er svo skrítið við þetta allt saman er að maður er svo fljótur að gleyma og man ekki eftir að þakka fyrir góðu dagana, heldur pirrast þá fáu sem fara í taugarnar á manni.

Brá mér í borgina tvær síðustu helgar. Þar sannaðist þetta sér Íslenska  lundarfar á sjálfum mér. Við feðgarnir fórum í borgina16. -18. október. Sölli fór í stöðupróf sem hann vill hafa uppá vasann til að geta valið úr Háskólum vestan hafs þegar hann fer í framhaldsnám.  Ég hugðist nýta tímann vel með myndavélina.Lítið um myndatökur utan dyra sökum rigningar. Ég brá mér þó á leik á laugardeginum hjá Stelpunum okkar í Þór þar sem þær léku gegn Fjölni í Grafarvoginum í körfubolta. Myndaði slatta þar. Myndin sem hér fylgir er af einum leikmanni Þórs Ernu Rún Magnúsdóttir í baráttunni.

Barátta

Næsti helgi á eftir eða um síðustu helgi fór svo öll familían saman suður. Sölli í annað stöðupróf og Sædís í vetrarfríi, nú átti að taka það rólega. Myndavélin með nema hvað?. Eins og þið munið hafði ég í síðustu færslu sagt vírusvarnir skipta miklu máli í því flensu fári sem nú skekur landið. Gott að geta gefið ráð en fylgja þeim kannski ekki sjálfur. Reyndar hefur tölvan ekki orðið fyrir árásum en Palli lagðist flatur í suðurferðinni og lítið um myndatökur. 

Þó gafst tími til að mynda smá. 

Hallgrímur

Greinilegt að menn eru langt komnir við að rífa utan af ,,Kirkjunni" í Reykjavík þ.e. sem kennd er við Hallgrím sáluga Pétursson. Fallegt guðshús. 

Kirkjan

Og svona lítur þetta út séð frá lóð Háskóla Íslands.

Keyrði svo kvenpeninginn í Smáralindina og þá lét ég verða að því að fara niður að Turninum sem er gárungarnir kalla bautastein Gunnars. Vissulega er húsið stórt enda einhverjar 20 hæðir. Ég var eitt sinn á hóteli í New York niður við Central Park og þá á 20. hæð í húsi sem taldi nærri 40 hæðir. Stórt. Turninn er vissulega stór  á okkar mælikvarða. En allt fer þetta eftir því hvernig maður horfir á húsið. 

Þetta lítur út fyrir að vera ansi stórt þegar maður stendur í c.a. 50 m. fjarlægð. En ef maður fer alveg upp að húsinu og lítur til himins þá virðist þetta bara ekki vera neitt neitt.

Stór?

En taki maður sé stöðu eins og hér þ.e. undir einu horni hússins og myndar uppeftir þá er þetta bara notalega lítill kassi. 

Heimferðin á mánudag. Palli veikur en restin í lagi. En á þriðjudag þegar Palli reis uppfrá dauðum lögðust stelpurnar á heimilinu. Já þessi blessuð flensa. 

En eins og ykkur kannski grunar er mikið að gera hjá Palli í kringum starfið hjá Þór. Það er og verður áfram. Vonandi mun ég verða duglegri við bloggið á næstunni, en þangað til.

Orð dagsins: Áfram Þór alltaf, allstaðar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

245 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband