Leita í fréttum mbl.is

Eins og álfur út úr hól

Ég hitti ,,granna" síðdegis í dag þó ekki þennan sem býr við hliðina á mér og er alger öðlingur. Ég er að tala um kunningja minn sem eitt sinn bjó í næsta nágrenni. Þegar við mættumst hreytti hann í mig eftirfarandi ,,Nú fær sko þjóðin að vita hvar Davíð keypti ölið" hann leit á mig með manndrápsaugum og strunsaði í burtu. Ég stóð eins og álfur út úr hól og vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið. 

Það var ekki fyrr en ég kom heim og sá á netinu að búið væri að ráða Oddsson sem ritstjóra Morgunblaðsins. Nú skildi ég ,,granna" ok Davíð er dottinn, hugsið ykkur hann dottinn í það og ráðin sem ritstjóri, já ekki er öll vitleysan eins.

Mér gæti að sjálfsögðu ekki staðið meira á sama um hver stýrir mogganum - já alveg sama. Ég er ekki áskrifandi og hef aldrei verið. Og stendur ekki til að svo verði.

Hvað um það lífið heldur áfram hér hjá mér eins og velflestum vonandi. En fyrr um daginn fylgdist ég með netlýsingu frá leik U-19 ára landsliðs kvenna þar sem þær voru að spila í undankeppni EM gegn Rúmeníu. Tveir leikmenn Íslenska landsliðsins eru frá Akureyri og leika með Þór/KA þetta eru  þær Arna Sif Ásgrímsdóttir og Silvía Rán Sigurðardóttir. Arna Sif gerði sér lítið fyrir og skoraði 2 mörk í 5-0 sigri glæsilegt hjá henni. Þá var Silvía Rán fyrirliði í þessum leik eins og í undanförnum leikjum. Flottar stelpur.

Í sæluvímu yfir velgengni Íslenska landsliðsins notaði ég tækifærið að taka myndir af tveimur yngstu barnabörnum mínum. Myndirnar eru einskonar tilraun og teknar í svart/hvítu.

Góður sopi

Hólmfríður Lilja teygar sopann út pelanum hjá Grétu ömmu

Vernd

Hendur Hólmfríðar í lófa afa

Táslur

Brugðið á leik með Jón Pál þar sem hann sýnir á sér tærnar

Hnefi í lófa

 Hnefi Jón Páls komin í lófa afa

Hendur

Og enn ein af afa og Jón Pál

Þangað til næst

Málsháttur dagsins: Ef boginn er bentur um of mun hann bresta.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Jóhannesdóttir

Glæsilegar myndir af flottum börnum þú ert sko ríkur :)

Hrönn Jóhannesdóttir, 28.9.2009 kl. 22:29

2 Smámynd: Páll Jóhannesson

Hrönn mín þú þekkir þetta - þegar barnabörnin bætast við manns eigin björn  þá er maður ríkur

Páll Jóhannesson, 28.9.2009 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

243 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband