Leita í fréttum mbl.is

Undirbúningi lokið.... kom inn

Ég endaði síðustu bloggfærslu á því að segja ykkur frá því að frúin í Drekagilinu sem hefur verið mín stoð og stytta í hart nær 31 ár hafi hafið undirbúning vegna 13. júlí. Já þann dag á hún afmæli. Í morgunsárið dreif ég mig á lappir bjó til eggja- og hangiket salat og dágóðan slatta af pönsum. Allt annað sér frúin um. Undirbúningi er lokið

Já fyrir þá sem leggja leið sína í kaffi koma ekki að tómum kofanum frekar en endranær. Og þeir sem til þekkja vita að ég er ekki að ýkja. Hvað um það þið komið kíkið inn og þiggið veitingar og takið létt spjall. 

Frúin sem ræður ríkjum í Drekagilinu leit sem sagt dagsins ljós fyrst augum þennan dag árið 1957 á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki og bjó inní Lýtingsstaðhreppi í eitt og hálft ár er hún fluttist með foreldrum sínum til Akureyrar. Þessi dagur er merkilegur fyrir þær sakir einnig vegna þess að amma og afi hennar í föðurætt fæddust bæði þennan dag. Stóra spurningin er hvað gerir Dagga í dag?

Ég kyssi konuna sérstökum afmæliskossi í dag.

Málsháttur dagsins:  Enginn hefur allt, og engan vantar allt


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Já Palli. Allir sem þekkja til vita að glæstar kræsingar eru alltaf þar á borði þegar einhver í Drekagili á afmæli. Nú ég mætti og naut gestrisninnar þar eins og ævinlega. Takk fyrir þinn þátt í veitingunum pönnsurnar voru mjög góðar og svo salötin líka. Maður má nú varla við öllum þessum veislum sem júlí mánuður færir okkur alltaf. Eigið gott kvöld og góðan morgundag, Kv.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 13.7.2009 kl. 21:39

2 identicon

Ég ætlaði að vera búinn að kommenta fyrir löngu en eins og Hebbi segir, Time flies.....

En semsagt, til hamingju með daginn og megið þið njóta sömu veðurblíðunnar og ég naut á Akureyri á dögunum allt til sumarloka!

Gunnar Th (IP-tala skráð) 16.7.2009 kl. 18:56

3 Smámynd: Jac Norðquist

Ég þurfti bara að setjast niður með bolla af góðu kaffi og gefa mér tíma til að lesa bloggið þitt Palli. Það er alltaf dásamlegt að lesa það en undanfarið hefur mér ekki unnist tími til þess svo úr því var bætt all hressilega núna. Takk fyrir að halda úti svona góðum skrifum.

Bestu kveðjur til ykkar hjóna

Jac "Bói" Norðquist

Jac Norðquist, 18.7.2009 kl. 11:22

4 Smámynd: Páll Jóhannesson

Sæll Bói minn og gaman að vita að þú komir enn inná síðuna. Ég er frekar duglegur við að fara á hin  ýmsu blogg þótt ég skilji ekki alltaf eftir  mig ummerki - fingraför, sem er að vísu bölvaður dónaháttur. kv frá Akureyri

Páll Jóhannesson, 18.7.2009 kl. 13:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

271 dagur til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband