Leita í fréttum mbl.is

Að standa við gefin loforð

Ég hét ykkur því, lofaði eða hótaði að grobba mig örlítið yfir útskrift sonarins og sýna ykkur myndir síðar. Nú er komið síðar og komið að smá grobb - bloggi. Sölli útskrifaðist frá Háskólanum á Akureyri með B.A. próf í Samfélags- og hagþróunarfræði með 1. einkunn. Einkunnir hans eru einstaklega glæsilegar í alla staði og Prófessorinn sem fór yfir lokaritgerðina hans sagði í umsögn að ritgerðin væri alger snilld og svo ofsalega fræðimannslega unninn. Ritgerðin er rituð á ensku og nærri 60 síður og ber titilinn The North Atlantic region and socio-economic impacts of global change: tracking change using artic social indicators.

Yfirlestur

Áður en haldið var upp í íþróttahöll þar sem útskriftin fór fram  dró Sölmundur fram ritgerðina og blaðaði aðeins í henni. Pabbi snöggur að smella einni. 

Útskrift

Hvorki fleiri né færri en 289 voru brautskráðir þennan dag og því var gríðarlegur fjöldi fólks mætt í höllina til að vera með sínu fólki. Hér er Sölmundur að taka við skírteininu úr höndum Birgis Guðmundssonar Lektors.

utskrift01_863866.jpg

Svo var tekið i höndina á deildarforsetum og rektor. Á þessari stundu var pabbinn ekkert smá stoltur. 

Eftir athöfnina fórum við svo heim í Drekagilið þar sem við fengum okkur brauð með gröfnum- og reyktum laxi og öðru góðgæti. Engin önnur veisluhöld þennan daginn. Mamman ekki sátt að fá ekki að baka en engu tauti var komið við soninn - enga veislu takk. 

Myndatökur heima í bak og fyrir.

Amma og afi

Með ömmu og afa

Sölli og grjónin

Með systkinabörnunum 

Systkini

Og svo með systrum sínum.

Um kvöldið fórum við svo öll saman út að borða á Greifann. Og auðvitað fóru amman og afinn með. Frábær matur fínn staður og dásamleg kvöldstund. Sumir lifðu sig meir inn í þá athöfn að snæða en aðrir

Innlifun

Já stundum gleymir maður stund og stað þegar maður snæðir.Eftir mat var farið á rúntinn sem endaði eins og svo oft.... í Brynju. Já Brynjuís klikkar ekki frekar en fyrri daginn. 

Og í lokinn mátti ég til að stoppa og taka Nonna tali enda var hann gáfu maður mikill og víðförull. Ein mynd af honum í lok dagsins sem er vel við hæfi.

Nonni

Nú svo heldur lífið bara áfram sinn vanagang. Sölli heldur sinni vinnu áfram en hann er að vinna í fjárreiðudeild á skrifstofum Akureyrarbæjar. Já hann er einn af þeim sem heldur utan um peningana hjá bænum. Þetta er allt vel við hæfi, nýr bæjarstjóri Hermann Jón Tómasson og Sölli eru nú einu sinni flokksbræður.

Fróðleikur dagsins er í boði Alberts Einstein:

Ég hugsa aldrei um framtíðina hún kemur nógu snemma.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Jóhannesdóttir

Hæ flottar myndir af Sölla. Það er sko bara eðlilegt að vera stoltir foreldrar af sínum börnum þegar þeim gengur vel í skóla. Enda er það ekki öllum gefið. Gaman hefði nú verið að vera viðstödd þennan merka árangur hans en svona er bara lífið og tilveran. Sjáumst eftir rúman mánuð biðjum að heilsa í bæinn.

Hrönn Jóhannesdóttir, 18.6.2009 kl. 23:33

2 identicon

Gott að vera stoltur af börnunum sínum.  Enn og aftur til hamingju

Anna Bogga (IP-tala skráð) 23.6.2009 kl. 14:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

244 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband