Leita í fréttum mbl.is

Skata - nei takk

Möndlugrautur

Ţorláksmessa runnin upp međ öllu sínum dyntum og tiktúrum. Óţefur hér og hvar og sumstađar, en ekki á mínu heimili. Ţegar ég stofnađi heimili setti ég lög sem banna kćsta skötu á mínu heimili um aldur og ćvi. Hins vegar er alltaf grjónagrautur međ möndlu í hádeginu. Á ţví var engin undantekning í dag ţar sem fjölskyldan kemur saman.  Jón Páll datt í lukkupottinn og fékk möndluna í ár. Sumir eru farnir ađ vćna afann um ađ brögđ séu í tafli ţar sem barnabörnin fái alltaf möndluna, piff ég blćs á svona ásakanir. Geisladiskur međ Glám og Skrám var möndlugjöfin í ár.

Ef allt var eđlilegt ţá kom Kjötkrókur til byggđa í nótt. Trúlegt ađ svo hafi veriđ enda fengu barnabörnin sitthvađ í skóinn. Um Kjötkrók var ort forđum daga.

KetkrókurKetkrókur, sá tólfti,

kunni á ýmsu lag,--

hann ţrammađi í sveitina

á Ţorláksmessudag.

 

Hann krćkti sér í tutlu,

ţegar kostur var á.

En stundum reyndist stuttur

stauturinn hans ţá.

Á morgun ađfangadag kemur svo sá seinasti til byggđa og er ţađ Kertasníkir, meira síđar um hann.

Spenningurinn í hámarki. Í dag verđur rápađ milli húsa og tíminn notađur í ađ slćpast og bíđa eftir jólunum. Út ađ borđa međ fjölskyldunni í kvöld á Greifann, nema hvađ?

Málsháttur dagsins: Tvisvar verđur sá feginn sem á steininn sest

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

248 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband