Leita í fréttum mbl.is

Þór og Tindastóll í kvöld - allir í höllina

Einu sinni á ári og stundum tvisvar eftir því hvernig aðstæðurnar haga því þá koma grannar okkar úr Tindastóli í heimsókn og mæta mínum mönnum í körfubolta. Kringum þessa leiki er alltaf sérstök stemming, stress en umfram allt  tilhlökkun og áháð því hvernig leikirnir enda þá getur fólk sem mætir á leikinn gengið að því sem vísu að þeir fá sko mikið fyrir snúð sinn. Ef að líkum lætur verður fjölmennt í höllinni og án ef munu stuðningsmenn Tindastóls verða fjölmennir á pöllunum og það verður vel tekið á móti þeim. Fyrir þá sem vilja þá er komin ítarlegur upphitunarpistill á heimasíðu Þórs og hann getið þið séð með því að smella hér Svo eftir leik mun birtast ítarleg umfjöllun á heimasíðunni með viðtölum við þjálfara beggja liða og leikmenn að vanda. Svo um að gera fyrir fólk að drífa sig á völlinn í kvöld, en fyrir þá sem ekki komast verður hægt að fylgjast með netlýsingu hjá KKÍ sjá hér Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Meira af íþróttum þá munu mínir menn í City spila í dag gegn spútnik liði ensku úrvalsdeildarinnar Hull. Hull City sem kom upp úr 1. deildinni hefur komið skemmtilega á óvart og eru búnir að vera við toppinn en hafa þó eilítið verið að missa flugið. Á sama tíma hafa mínir menn komið á óvart, því miður ekki skemmtilega heldur valdið talsverðum vonbrigðum. Vonandi ná þeir að hrista af sér slenið og hífa upp um sig brækurnar og landa sigri í dag - Áfram Manchester City

Annars hefur helgin fram að þessu verið hin rólegasta. Á morgun tekur svo við ný vika með stífu prógrammi á Kristnesi. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt. Þegar endurhæfingin hófst sem tekur 6 vikur fannst manni eins og þær væru heil eilífð - nú eru aðeins 2 vikur eftir.

Ætla ekkert að fjalla um hið dásamlega ástand í þjóðfélaginu, enda sagði mér kona sem vinnur á Kristnesi (Tælensk þótt þjóðernið skipti engu máli nema til að útskýra stafsetninguna og af því að í dag er dagur íslenskra tungu) hún sagði ,,það errr engin greppa á Íslandi fólk bara spara gunna nota pening rett og ana nú". Svo mörg voru þau orð og ég segi bara amen á eftir efninu - AMEN.

Skilaboð dagsins: Ég ætla í höllina í kvöld - kemur þú ekki örugglega líka?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Jóhannesdóttir

Já sæll innilit og kvitt

Hrönn Jóhannesdóttir, 18.11.2008 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

245 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband