Leita í fréttum mbl.is

Mikill er máttur íslenskt efnahagslífs

Síbylja = allt þessari steindauðu ríkisstjórn að kenna sem hefur verið steinsofandi hún hefði átt að hlusta - Síbylja = Guðni Ágústsson. Bandaríski fjármálamarkaðurinn hruninn - Franski komin hálfur á kaf og mun ef að líkum lætur fara alla leið.  Og allt er þetta lélegri efnahagsstjórn hinnar Íslensku ríkisstjórn að kenna ef tekið er mið af málflutningi Guðna Ágústssonar. Jesús Pétur og allir hans himna englar, ja mikill er máttur Íslensku krónunnar og íslenskt efnahagslífs. Ég yrði ekki hissa ef Frakkar og Bandaríkjamenn gerðu innrás á Ísland í refsingarskyni. Svart Pétur ruddist inn í bankann með byssuhólk í hvorri hönd.....= Glitnir, það gæti orðið afdrifaríkt því Davíð hefur örugglega klárað skotin í yfirtökunni á Glitni. Hvernig verjum við okkur þá - engin skot?

Annars er lítið sem ekkert að gerast í íslensku þjóðlífi sem talandi er um. Allt eins og blómstrið eina svo ég tek fyrir næsta mál á dagskrá = íþróttir.

Körfuboltavertíðin hófst í gærkvöld með því að mínir menn í Þór tóku á móti Stjörnunni i Poweradebikarnum í íþróttahöllinni. Skemmst er frá því að segja að mínir menn unnu Garðbæinga og slógu þá út úr keppninni. Þeir halda svo suður með sjó og mæta Íslandsmeisturum Keflavík í 8. liða úrslitum.

Bloggvinur minn flutti til Reykjavíkur af því að íþróttafélagið sem hann heldur með (fyrirgefið hélt með) og er staðsett á suðurbrekkunni á Akureyri varð gjaldþrota og þurfti aðstoð annarra til að komast á lappir. Þess vegna kaus hann að flytja til Reykjavíkur og setjast þar í helgan steins eins og hann orðaði það ,,Skítugu og menguðu Reykjavík".  Ja hérna, heyr og endemi það er greinilega farið að hausta víðar en í veðrinu. Hann er reyndar komin á þann aldur að golfið ætti að fara henta honum og þá getur hann gengið i einhvern golfklúbbinn mér skilst að þar gangi sæmilega.

Speki dagsins: Öll él birtir upp um síðir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

243 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband