Leita í fréttum mbl.is

Þórssigur

Annasamur dagur að baki og frekar einkennilegur fyrir okkur Þórsara. Við fylgdum góðum vini til grafar í dag. Peter Jones sem lést þann 11. mars s.l. var lagður til sinnar hinstu hvílu. Góður drengur hann Peter og munum við Þórsarar sakna hans mikið. En söknuður eftirlifandi eiginkonu hans og fjölskyldu er mikill. Við eru þakklátir fyrir að hafa fengið að njóta krafta þessa mæta manns.

Fagn1Í kvöld fór svo fram gríðarlega mikilvægur leikur hjá körfuboltaliði Þórs. Við fengum bikarmeistara Snæfells í heimsókn í lokaumferðinni. Þór þurfti sigur til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni og Snæfell þurfti sigur til að eiga von á að hreppa 4. sætið af Njarðvík að því gefnu að þeir töpuðu sínum leik. Mínir menn í Þór unnu sannfærandi sigur á Snæfelli 88-78 og Njarðvík lagði Grindavík og því er 4. sætið þeirra. Óska Hrönn litlu systir og Gústa til hamingju. Við Þórsarar dönsum sigurdans fram eftir nóttu enda komnir í úrslitakeppnina í fyrsta sinn síðan 2000.

Gæti bloggað um himinhátt bensín verð og annað sem ríkur upp úr öllu valdi á þessum síðustu og verstu sem tæmir veski manns hraðar en orð fá lýst. Dettur í hug eins og segir um Lukku Láka ,,skjótara en skugginn".

Hvað um það meira um eitthvað síðar.

Málsháttur dagsins: Ekki skýlir skugginn þá skinið er bjart

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Jóhannesdóttir

Takk Palli og til hamingju með sigurinn ykkar megin Þetta verður sko hörkubarátta framundan og gaman verður að fylgjast með Við dönsum bara um páskana okkar dans enda húsbóndinn þreyttur eftir langan vinnudag fór beint í Ljónagryfjuna að vinna þar og kom þreyttur og ánægður heim 

Hrönn Jóhannesdóttir, 19.3.2008 kl. 08:35

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Til hammingju með með þennan árangur Þórsara!

Þú verður bara að blogga um þetta helv... brjálæði í efnahagskerfinu síðar.

Edda Agnarsdóttir, 19.3.2008 kl. 11:46

3 identicon

Til hamingju með sigurinn og gangi ykkur bara vel ég er ekki mikið að fylgjast með íþróttarfréttunum en ég er samt alveg nógu vel að mér í íþróttum.kv.Ragnar Þór Ragnarsson

Ragnar Þór Ragnarsson (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 13:27

4 Smámynd: Páll Jóhannesson

Hrönn! nú þurfa mínir menn að slá Kef út og sjáum hvað setur.

Edda! já nú er mikið að gera í íþróttalífi hjá Þór og þá bíða hlutir sem minna skipta máli í lífinu eftir að um þá verði fjallað þ.e.a.s. efnahagsástandið.

Já Ragnar minn þú veist margt og mikið enda fróður strákur,  það veit ég mæta vel.

Páll Jóhannesson, 19.3.2008 kl. 15:47

5 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Til hamingju með sigurinn.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 19.3.2008 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

243 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband