Leita í fréttum mbl.is

Þessi kona er perla.

Elsa Ef ég ætti að skrifa tæmandi færslu sem myndi lýsa öllum helstu kostum og stórkostlegu eiginleikum sem þessi kona býr yfir yrði bloggið langt. Ekki svo að skilja að hún verðskuldi ekki að um hana væri skrifað langur listi þar sem allir hennar góðu mannkostir væru tíundaðir. Þeir sem hana þekkja vita hvað ég er að meina. Við hjónin skruppum í heimsókn til hennar í morgunsárið og drukkum með henni kaffi og áttum notalega morgunstund með henni. Af því tilefni smellti ég af einni mynd af henni og fékk hjá henni góðfúslegt leyfi til að birta hana hér.

Óska Elsu til hamingju með daginn.

Fróðleikur dagsins: Afmælisbarnið heitir að fyrra nafni Margrét, sem þýðir Perla hafsins, það er vel við hæfi. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já það er sko alveg satt, hún Elsa er með yndislegri mannsekjum sem ég þekki um mun þekkja, alltaf brosandi sama hvað  Ég ætla að óska henni líka innilega til hamingju með daginn og vonandi var hann jafn góðu og hún á skilið

Dagga (IP-tala skráð) 22.11.2007 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

250 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband