Leita í fréttum mbl.is

Megas engum líkur.

megasBrá mér á tónleika með Megasi og Senuþjófunum á Græna Hattinum í gærkvöld. Skemmst er frá því að segja að þar varð engin fyrir vonbrigðum. Meistari Megas hefur greinilega engu gleymt. Þá verður að segjast eins og er að hljómsveitin Senuþjófarnir er bara tær snilld. Frábærir tónlistarmenn allir sem einn.

Var einstaklega gaman að hlýða á gamla smelli á borð við, Spáðu í mig, Krókadílamaðurinn, Ragnheiður Biskupsdóttir og fleiri gullmola í vægast sagt frumlegum útsetningum með tilheyrandi púðri frá hinum fingra fima Guðmundi Péturssyni gítarleikara. Þótt ég nefni Guðmund til sögunnar eiga félagar hans í hljómsveitinni engu minna hrós skilið fyrir frábæran tónlistarflutning. Maður getur gegnið að því vísu að vita ekki fyrirfram á hverju maður á von þegar Megas er annars vegar, en hitt er ljóst að maður getur gengið að því vísu að hann klikkar ekki frekar enn fyrri daginn. Megas og Senuþjófarnir fá 10 í einkunn af 10 mögulegum.

Mínir menn í Manchester City léku á útvelli gegn Fulham og lauk þeim leik með 3 -- 3 jafntefli. Mikill markaleikur svo að áhorfendur hafa eitthvað fengið fyrir snúð. Eru því mínir menn í City enn í öðru sæti úrvalsdeildarinnar, sem er bara allt í góðu lagi.

Hins vegar var dagurinn ekki jafn gjöfull hjá mínum mönnum í Þór. Knattspyrnuliðið lék á útivelli gegn Fjölni úr Grafarvoginum og máttu þola 2-0 tap. Aðeins einn leikur eftir hjá þeim í deildinni þ.e. heimaleikur gegn erkifjendunum af brekkunni.

Körfuboltalið Þórs sem sló Keflvikínga út úr fyrirtækjabikarnum s.l. fimmtudagskvöld skruppu svo í Hólminn og léku gegn firnasterku liði Snæfells. Þar lauk keppni minna manna í fyrirtækjabikarnum. En nú styttist óðfluga í að Íslandsmótið í úrvalsdeild hefjist en fyrsti heimaleikur Þórs verður hér heima þann 11. okt á móti ÍR. Palla hlakkar mikið til.

Fróðleikur dagsins: Þegar Albert Einstein lést dóu lokaorð hans með honum. Hjúkkan sem var hjá honum skildi ekki þýsku.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Já það er alveg hægt að öfunda þig af Megasar tónleikunum!

Góðar stundir.

Edda Agnarsdóttir, 23.9.2007 kl. 14:38

2 identicon

...en finnst fólki ekki merkilegt að "Spáðu í mig" skuli enn heita "Spáðu í mig" í þessu þágufallssjúka landi? Hvers vegna skyldi ekki vera talað um lagið sem "Spáðu í mér"?

 Þetta er svona eins og þvælan: "Spáðu í því! "  sem er hrærigrautur úr "Spáðu í það" og "Pældu í því"

Spáið í því!

Gunnar Th. (IP-tala skráð) 24.9.2007 kl. 07:40

3 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Sammál þér Megas er snillingur. Hefði gjarnan viljað vera þarna,en ég hlustaði á hann á Ljósanótt í Reykjanesbæ.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 24.9.2007 kl. 09:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

249 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband