Leita í fréttum mbl.is

Harry Potter æði hér og þar og allstaðar

Hugðist hendast á völlinn á föstudagskvöld og sjá leik Þórs og ÍBV. Öllum að óvörum í veðurblíðunni þá varð að fresta leiknum til laugardags þar sem ekki var hægt að fljúga frá Eyjum.... var að velta því fyrir mér hvort það hafi verið sólin hér norðanlands sem hræddi þá?

Leikurinn átti að hefjast kl. 14:00 frestað til 15:00 og loks hófst hann svo um kl. 17:30. Þar með komst ég ekki. Kannski eins gott því mínir menn máttu lúta í gras eins og Bjarni Fel segir gjarnan um lið sem tapar. Leiknum lauk með sigri ÍBV 0-2. Fótbolta helgin var heldur rýr hjá okkur Akureyringum því nágrannar okkar á brekkunni héldu til Ólafsvíkur og sáu þeir gulu aldrei til sólar og steinlágu 6-0. Heldur er farið að syrta í álin hjá vinum okkar á brekkunni.

Á laugardagskvöldið var tekin smá pása frá sólpalla smíðinni og vinum okkar úr Hraungerðinni boðið í mat þar sem grillað var hið eina sanna Íslenska fjallalamb, sem klikkar aldrei. Kvöldinu svo eytt við nammiát og afslöppun með góðum vinum.

Sunnudagur smá smíð fram að formúlu en þá var sest niður og fylgst með afar undarlegum kappakstri svo ekki sé nú meira sagt. Að honum loknum var tekið aftur til við hendinni við smíðina.

Greinilegt að heimurinn stendur á öndinni (má það?) í spenningi yfir Harry Potter og örlögum hans. Hef reyndar ekki lesið sem mikið sem eina blaðsíðu af þessum ævintýrum. Fór þó í bíó þegar fyrsta myndin kom út - þurfti ekki meira til - þetta höfðar ekki til mín.

Á morgun koma Dagga og fjölskylda heim aftur eftir að hafa eytt 8 dögum í Englandi þar sem Jói var að útskrifast sem Masters eitthvað gott hjá honum. En enn betra og því meir hlakkar mig til að hitta barnabörnin sem ég hef ekki séð í viku sem er full mikið fyrir jafn viðkvæma sál og ég er. Nokkuð ljóst að þau verða tekin og knúsuð og dekruð að hætti afa og ömmu Smile

Fróðleikur dagsins: Central Park í New York var opnaður árið 1876.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Mér er stórlega létt...ég er ekki eina eintakið sem er laus við Potteræðið mikla... hver er annars þessi H. Potter ????

Jón Ingi Cæsarsson, 22.7.2007 kl. 22:32

2 Smámynd: Páll Jóhannesson

Sæll Jón Ingi! mér létti líka við þess athugasemd frá þér - ég var farin að halda að ég og Sölli værum einir í heiminum  úff velkomin í hópinn.

Páll Jóhannesson, 22.7.2007 kl. 22:36

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Ég hef aldrei lesið Potter og hef aðeins séð part og part af einhverri bíómynd eða bíómyndum og heillaðist ekki. Eeeen ég verð að viðurkenna það að ég er alltaf að hugsa um bækurnar og hef hug á að svolgra eina í mig - sjáum til.

Edda Agnarsdóttir, 23.7.2007 kl. 01:04

4 identicon

Er enn að velta því fyrir mér hvernig ÍBV gat unnið 0-0

Anna Bogga (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 11:10

5 Smámynd: Páll Jóhannesson

Takk frænka fyrir ábendinguna. En ég hefði verið sáttari ef leikurinn hefði farið 0-0. En eitt sinn var sagt að Íslendingar hafi unnið Frakka 1-1  í frægum leik á Laugardalsvelli haustið 1998. Svo það eru samt fordæmi fyrir því að hægt sé að vinna með jöfnu

Páll Jóhannesson, 23.7.2007 kl. 11:43

6 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Anna við verðum að horfa fram hjá svona íþróttalýsingum hjá Páli, fyrir hann að skrifa 2-0 tap hjá Þór er ekkert ósvipað og fyrir Samfylginguna að útskýra fylgistap.

Auðvitað er aldrei um hreint tap að ræða heldur þarf að lesa bara betur í úrslitin. Ef við myndum biðja Pál um nákvæma leiksskýrslu sæjum við fljótlega að auðvitað hefði þessi leikur átt að fara 0-0.

S. Lúther Gestsson, 23.7.2007 kl. 11:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Páll Jóhannesson
Páll Jóhannesson

Akureyringur, eiginmaður, pabbi, afi, Þórsari,  jafnaðarmaður, City - fan og Áfram Þór alltaf, allstaðar.

Hafi einhver áhuga að senda mér tölvupóst þá sendið á pallijo@internet.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

250 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband